Sameiningin - 01.08.1905, Blaðsíða 7
»7
•2. Hjátrú flytja Farísear,
fornar kred lur binda viö;
vantrú boða Sadúsear,
svifta hjörtun ró og friö.
Far.'sear,
Sadusear
sitt á hvora standa hliö. . •,tmx
3. Frelsi hata parísear,
fjötrunum þeir una bezt;
lögmál hatá Sadúsear,
sundr vilja slíta flest.
Farísea,
Sadúsea
súrdeig skaltu varast mest.
4. Forða’ oss, guð, við Faríseum,
fjötra þeirra sundr sker;
bjarga’ oss, guð, frá Sadúseum,
sverðin þeirra bitsljó ger,
Farísea,
Sadúsea
súrdeig gef að forðumst vér.
Norðr í landi.
Eftir sára Rus jlf Marteinsson,
Winnipeg-vatn er eitt af stórvötnum Canada. Það er
um 300 enskar mílur á lengd frá norðri til suörs, liggr a5
mestu leyti innan takmarka Manitoba-fylkis, en þó er norð-
asti hluti þess í Keewatin. Margar ár stórar og smáar falla f
vatnið, en að eins ein rennr úr því, Nelson-á. Hún hefir
upptök sín í norðaustrhorni vatnsins og rennr norðaustr tiíi
Hudsons-flóa. Nálægt upptökunum er fiskistöð, sem nefnd
er Warren’s Landing. En 22 mílur þaðan niðr með ánni er
staðr, sem nefnist Norway House. Þar eru einar af aðal-
stöðvum Hudsons-flóa-verzlunarfélagsins, og á þessi staðr
all-merkilega sögu. Ef maðr svo fer tvær mílur lengra niðr
með ánni, kemr maðr að einni trúboðsstöð Meþodista-kirkj-
unnar, sem nefnist Rossvi/le Mission.
Sunnudaginn $. Ágúst voru þar staddir þrír af prestum