Sameiningin - 01.08.1905, Blaðsíða 16
96
Mér virðist all-auSvelt a5 gjöra sér grein fyrir því, hvernig'
á því stendr, að Unitara-kirkjan er aö hverfa. Skynsemin
hefirþar veriðhafintil tignaránþessað farið
hafi verið eftir fyrirmælum skynseminnar.
Sé guð kærleikans til, sem er faðir allra, eins og Unitarar
kenna, þá er það frá sjónarmiði skynseminnar sennilegt, að’
hann láti sjálfan sig og vilja sinn opinberaðan börnum sínum.
Heilbrigð skynsemi heimtar það því, að vér tökum biblíunni
sem skýrri opinberan vilja hans og Jesú Kristi sem opinberarx
hans sjálfs. Að halda því fram frá sjónarmiði Unitara, að
Jesús Kristr sé góðr maðr, eftir að vér höfum heyrt hanm
segja: ,,Áðr en Abraham var er eg“, og eftir að vér höfum
séð hann mótmælalaust taka við tilbeiðslu frá áhangendunx
sínum, það hefir í för með sér skyldu til að sanna, aö sama
persóna geti veriö tvennt í einu: góör maðr og svikari, sem er
í mesta máta óskynsamlegt! Ef vér neitum því, að biblían
sé innblásið guðsorð, þá felst í þeirri neitan játning þess, að
skapari vcr og faðir hafi sett oss á jörð þessa án nokkurrar
skýrrar opinberunar viðvíkjandi vilja hans oss til handa. Ef
vér neitum því. að Jesús sé guð mannlegu holdi klæddr, þá
hljótum vér að saka föður vorn um það, að hann vilj' ekki
láta börn sín vita neitt með vissu um sjálfan sig.
(Meira.)
A ddress: Sameiningin, P. O. B o x 6 8 9,
Winnipeg, Man. , Canada.
FéhirSir og ráðsmaðr ,,Sam. “ og ,,Kenn.“ er Jón J. Voptii,sem kosinn var
til þess starfs á síðasta kirkjuþingi í staS útgáfunefndarinnar, er áðr var.
,,EIMREIÐIN“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á íslenzku.
Ritgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. hvert hefti. Fæst hjá Hall-
dóri S. Bardal í Winnipeg, Jónasi S. Bergmann á Garðar o. fl.
,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 númer á ári. Sunnudags-
skólablaðið ,,Kennarinn“ fylgir meS ,,Sam.“ í hverjum mánuði. Ritstjori
,,Kennarans“ er séra N. Steingrímr Þorláksson, WestSelkirk, Man. Argangs-
verð beggja blaðanna aðjeins $1; greiðist fyrirfram.— Skrifstofa ,,Sam.“: 704
Ross Ave., Winnipeg, Manitoba, Canada.