Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1905, Page 4

Sameiningin - 01.08.1905, Page 4
84 með plötum úr gulli og silfri, og allr annar umbúnaðr að sama. skapi dýr og skrautlegr. Einnig fannst í grafarhvelfingunní fjarska-mikið af allskonar gullbúnum forngripum, svo sen> stólar og kistur, dýrmdis-ker úr alabastri, stórar krukkur með’ víni og olíu í, skrautvagn einn mikill og prýoilegr og margt. fleira. Gjörðin á öllum þessum munum ber þess vott, að í- þróttin hafi verið á ótrúlega háu stigi á þeim tími, er þeir urðu til. Það er um 3300 ár síðan búið var um legstað þennan, og hefir aldrei verið við honum hreyft fyrr en nú. Þykirauð- sætt, að Tai drottning hafi með þessari dýru og glæsilegu. greftran viljað hefja foreldra sínatil konunglegrar tignar. Húu var ekki egypzk að uppruna; foreldrar hennar voru ættaðir austan úr Mesopotamíu. Fyrir áhrif hennar leiddi konungr- inn sonr hennar að nokkru leyti ný trúarbrögð inn í Egypta- land, en að honum látnum náði gamli egypzki átrúnaðrinrr sér aítr niðri meðal landslýðsins. Þetta var löngu áðr en Móses var uppi. Lang-flest kirkjufélög hér í Vestrheimi hafa ársþing sín- í Júnímánuði. En auk þess hélt nú í ár í þeim mánuði þriggja. ára þing sitt International Sunday School Association, sem er lang-stœrsti félagskapr í heimi sunnudagsskóla-málinu til stuðnings. Þing þetta var haldið íToronto í Ontario, í síðustu viku mánaðarins, og var fjarska fjölmennt. Þrem árum áðr var samskonar þing haldið í Denver, Colorado. Næsta alls- herjar þing á að halda í Louisville, Kentucky, árið 1908. A Toronto-þinginu var mikið um það roett, hvort sam- þykkt skyldi tillaga frá standandi nefnd um að innleiða sér- stakar lexíur fyrir þá lærisveina í sunnudagsskólum, sem lengst eru komnir og mestum þroska hafa náð. Nefndin hafði að- eins ráðið til þess, að sú nýbreytni væri leyfð þar sem þess væri óskað, en ætlaðist ekki til, að neinn sunnudagsskóli væri skyldaðr til þess. Engu að síðr varð þetta meðal þingmanna um hríð hið mesta hitamál. Nefndartillagan var fyrst felld með meira hluta atkvæða, en minni hlutinn var svo stór (601 atkvæði á móti 617) og svo ákafr með því að fá hinar nýju auka-lexíur, að samkvæmt tillögu frá einum úr meira hlutan-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.