Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1957, Page 6

Sameiningin - 01.12.1957, Page 6
4 Sameiningin þó að hans hugsanir séu ei vorar hugsanir, þó að hans vegir séu ósporrækir, þó að hann heiti því er ótrúlegt virðist, þó að dimmt sé í himni og svörtum skuggum slái á brautir hans barna, þá mun þó jafan mitt í myrkri og dimmu ljósið ljóma og gleðja guðhrædd hjörtu. Trú því og huggast við það, hver sem hryggur ert í huga; lær það enn á ný við jötuna í Betlehem að Guð er trúr. Hann græðir sár og sorgartár, ei sífellt lætur vinna. Þinn hug við allt það hugga skalt, er hans þér orðin kenna. En þar mátt þú einnig sjá annað fagnaðarefni öllu meira, Guðs kærleika til syndugra manna. Reifabarn liggj- andi í jötu og þó um leið Guðs eingetinn sonur; hvílík undur! Hvílík niðurlæging! Hans fyrsta herbergi á jörðu fénaðar- hús; hans vagga tóm jata! Og þó var hann hinn eingetni son föðursins, konungur himins og jarðar. Og um leið og þú nú sér í anda vöggu hans, fyrstu hvílu á þessari jörð, þá hugsaðu einnig til hans síðustu hvílu, krossins á Golgata; renndu huganum frá reifunum, er hann var vafður ný- fæddur, til líkklæðanna, er hans andaði líkami var hjúpaður við greftrunina; frá hans fyrstu ævistund til allrar ævi hans, til hinna mörgu mæðustunda, til alls hins mikla dagsverks, er liggur milli jötunnar og grafarinnar, og hugleið svo, til hvers hann var í jötu lagður, til hvers hann starfaði og leið og var á krossi deyddur, að það var allt til þess að hinn vesæli heimur yrði endurleystur, að hið glataða, spillta mannkyn yrði friðþægt við Guð og endurfætt til nýs lífs fyrir þessa fæðingu, þjáningar og dauða, og seg svo: Er slíkt eigi kærleikur, er slíkt eigi náðarundur, er slíkt eigi óumræðileg líkn og miskunn vors Guðs; og mættum vér eigi þakka hana og vegsama Guð fyrir hana miklu fremur og innilegar en hirðarnir, er svo lítið höfðu séð af öllu þessu, og lítt báru skynbragð á hverju þeir fögnuðu yfir- Guð er kærleikur, það eru hin fegurstu og sælufyllstu orð allar ritningarinnar um hinn almáttuga herra himins og jarðar. Hvernig þessi eilífi kærleikur ríkir á himnum, til- beðinn af ljómandi englasveitum, stýrandi hinum óteljandi heimum, er hann hefur skapað, hulinn í hinu óumræðilega

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.