Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1957, Side 8

Sameiningin - 01.12.1957, Side 8
6 Sameiningin einn ungur mundi þann lærdóm hefja er gjörði alla þeirra heimspeki að heilaspuna, að galeliskir fiskimenn og toll- heimtu menn mundu útbreiða þann lærdóm og rita þá bók, sem öll þeirra rit yrðu lítilsverð hjá — sannarlega mundu þeir eigi hafa virt slíka spásögn nema að háði og spotti. —■ Og er þó eigi allt þetta fram komið? Er eigi það ljós útgengið frá þeim hinum dimma helli, er um allan heiminn ljómar? Er eigi úr þeirri hinni lágu jötu fram genginn sá konungur, er öll kné lúta bæði á himni og jörðu? Er eigi á þeirri nóttu grundvöllur lagður að því ríki, sem ennþá stendur, þó að ríki Ágústusar keisara sé fyrir mörgum öldum liðið undir lok? Er eigi úr þessum lága afkima sú trú út gengin, er nú á háreist musteri í öllum löndum heimsins, þar sem nú er á óteljandi tungum sungin lof og dýrð fyrir það að oss er frelsari fæddur? Ef einhver væri hér á meðal vor, sem efaðist um að Jesús sé af himnum kominn, að hans orð séu frá Guði og að hans ríki sé eilíft og ævarandi, þá gangi hann í anda að jötunni í Betlehem og hugleiði þá sjón er þar er að sjá, hið unga barn og hina fáu fátæklinga umhverfis, hversu lítið og alls ekkert af veraldardýrð né mannlegu veldi — og hugleiði síðan, hvað af þessum litla vísi er sprottið, eftir að svo margar aldir eru yfir hann liðnar, eftir að svo margir óvinir hafa móti honum barizt, eftir að svo margt annað frægt og voldugt er hjaðnað og hnigið til jarðar; hugsi hann til þessarar yfirstandandi hátíðar, í hversu mörgum kirkjum er hann nú boðaður, af hversu mörgum vörum vegsamaður, af hversu mörgum hjörtum elskaður, hann, sem í jötunni lá sem fátæks manns barn lítilsvirt og ókunnugt. Hlýtur eigi hver maður að játa, að þar sýnir sig guðlegur máttur; hlýtur eigi hver maður að vegsamá Guðs almætti, er öllu þessu hefur til leiðar komið á móti mannlegu ofríki og undirstrika þessi lofgjörðarorð: Allt guðs speki, miskunn mátt, mikli, göfgi, prísi hátt. Dýrð sé Guði í hæstum hæðum, hrósi jörð hans ástargæðum. En hin lága jata í Betlehem á eigi aðeins að vera oss dýrðleg höll guðlegrar hátignar, hún á einnig að vera fæð- ingarstaður guðlegs lífernis á jörðunni. Eins og barnið, sem

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.