Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1957, Síða 9

Sameiningin - 01.12.1957, Síða 9
Sameiningin 7 lá í jötunni, óx upp og varð máttugt í anda, eins og sonur- inn, er hinn himneski faðir hafði velþóknun á, út gekk úr lítilfjörlegu hreysi, svo eiga þaðan að renna lækir lifandi vatns til mannkynsins alls og skapa í því nýtt líf, og svo eigum vér öll þaðan að ganga sem nýir menn, skapaðir eftir Guði í réttlæti og heilagleika sannleikans. Hjarta þitt, synd- ugur maður, þitt sauruga, spillta hjarta, með þess illu hug- renningum og lágu fýsnum, það er það hreysi er Jesús á að nýju í að fæðast. Hjarta þitt, svo þröngt og tómt, er sú jata, sem nú á í móti frelsaranum að taka, til þess að hann búi þar og þroskist þar. Fæðing Jesús fyrir 19 öldum, hún kemur þér að engu liði, og jólahátíðin, sem vér nú höldum heilaga, hjálpar þér að engu, ef þú eigi lætur hið nýja, heimneska líf innrætast í hjarta þitt. Þó að frelsarinn svo þúsund sinnum væri fæddur í heiminn, værir þú jafnt glataður, ef hann eigi fæðist einnig í þínu hjarta- Gætið því þess, að Guðs náð verði eigi til ónýtis á yður — það er áminning þessarar hátíðar til yðar allra. Hvað á ég að gjöra til þess að ég öðlist eilíft líf? Það er spurning, sem vér eigum hvert um sig að leggja fyrir oss sjálf á þessari hátíð. — Vér getum látið hina helgu frásögu um fæðingu Jesú svara þeirri spurningu fyrir oss. Hirðarnir fóru og sáu, hvernig allt var eins og englarnir höfðu boðað þeim. Kom þú einnig og sjá. Kom þú í dag og dag eftir dag, eigi aðeins helgidaga og hátíðardaga, heldur hvern dag. Hugsaðu eigi að þú hafir nóg gjört til að halda helga fæðingarhátíð frelsarans, þó að þú hafir komið hingað í dag og setið hér litla stund í minningu hennar. Nei, kom þú aftur og aftur að skoða hans fæðingu; vertu fúsari og fúsari til að sjá og skoða. Sjá þú þá sögu, þá helgu sögu, sem hófst í Betlehem og endar á Olíufjallinu með himnaför Jesú. Skoða þú þá sögu á komandi ári með eftirtekt og guðrækilegri athygli. Ef þú gjörir það, þá er mikið unnið. Það eru svo margir, sem vanrækja það, að koma og sjá, að lesa og heyra; ef það er vanrækt, þá er eigi von að hið nýja líf glæðist í hjörtunum, því hvernig eiga menn að trúa á þann, sem þeir hafa ekkert um heyrt. En það er ei heldur nóg aðeins að koma og sjá, þú þarft ennfremur eins og María gjörði, að geyma öll þessi orð í hjarta þér. Að vísu skildi eigi María í fyrstu hvað fram fór á himni fyrstu jólanótt, hún vissi eigi hvílík náð henni og öllu mannkyni var auðsýnd, en hún geymdi það í

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.