Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1958, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.03.1958, Qupperneq 15
Sameiningin 13 GEIMFARIR OG GUÐSRÍKI Með sigri vísindalegrar tækni á þyngdarlögmálinu og gufuhvolfinu, og hugsanlegum geimförum til annarra hnatta, hefir víða vaknað nýr áhugi fyrir spurningúnni: Er mannlíf á öðrum hnöttum? Dr. Helgi Péturss hélt þessu fram á sínum tíma, en mörgum þótti slíkt þá hugarórar. Ef svo skyldi reynast, að mannlíf fyrirfinnist á öðrum hnöttum, hvaða áhrif myndi það hafa á heimsskoðun kristindómsins? Prófessor einn við Cambridge háskólann kemst svo að orði um þetta: „Ef það kemur í ljós að mannkýn vort hér á jörðinni er aðeins eitt á meðal fjölda annarra á öðrum hnöttum, hvernig getum vér þá haldið því fram, án þess að gerast sek um heimskulegt stærilæti, að vér séum sér- stæðar verur frammi fyrir Guði, og að vér höfum notið sérstakrar náðar.“ Hið víðlesna trúmálablað, The Chrisiiian Herald, segir í ritstjórnargrein: „Vera má að hinn eilífi sonur (Kristur) hafi tekið á sig mannlegt hold á öðrum hnöttum, og írelsað mannkyn í öðrum veröldum en þeirri er vér nú byggjum.11 ☆ . ☆ ☆ Guðslög — Landslög Gamla deilan um það hvort guðslög (canan law) eða landslög eigi að ráða um hátterni manna hefir blossað upp á ítalíu nýlega. Tilefnið var það að hjónaefni ein vildu ekki beygja sig fyrir „guðslögum“ kaþólsku kirkjunnar, og létu gefa sig saman á borgaralega vísu. Biskup umdæmisins lét viðkomandi sóknarprest lesa af stólnum yfirlýsingu um að þessi hjón lifðu í hneýkslanlegri sambúð, og hefðu gert sig sek í saurlifnaði. Brúðguminn kunni þessu illa og höfðaði skaðabótamál gegn presti og biskupi og fékk þá dæmda í sektir fyrir róg og illmæli. Páfinn brást reiður við og lýsti yfir því, að ríkið væri með þessum dómi að ofsækja kirkj- una. Til þess að gefa „gremju sinni og sorg“ frekari áherzlu neitaði hinn heilagi faðir að hræra Sig úr íbúð sinni, þegar til þess kom að minnast krýningarafmæls hans nú nýlega- Fyrir kirkjudyr í ýmsum stórborgum landsins var hengt upp svart klæði, sorg hins „heilaga" til frekari áréttihgar, og til að mótmælá öfsóknum ríkisins á ;hendur biskupi þessúm og presti hans.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.