Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1947, Side 15

Sameiningin - 01.11.1947, Side 15
Sambininqin 171 lítið í reikningi. Kverið var ég látinn læra, og kunni ég það nokkurn veginn, þegar ég var níu ára gamall. Hvaða áhrif hafði þetta svo á mig? Eg var sannfærður um tilveru og nálægð Guðs, og ég vildi í einlægni þóknast honum. Eg man ekki eftir, neinum mótþróa hjá mér gagnvart hinu guðlega, sem mér var kent. Með þetta hugarþel yfirgaf ég ísland og tók mér bólfestu í annari heimsálfu. Þetta vega- nesti gaf móðurkirkja vor Vestur-fslendinga mér, þjóð- kirkja íslands. Mér finst því, þegar ég hugsa aðeins um mína eigin æsku, að ég hafi ekkert út á hana að setja. Eftir mínum barnslegu vitsmunum fanst mér hún aðdáunarverð og ég var henni þakklátur fyrir það, sem hún gaf mér, og það er ég enn. Eftir að ég kom hingað vestur, heyrði ég all-mikið talað um drykkjuskap presta og aðrar misfellur á íslenzku þjóð- kirkjunni, og tel ég víst, að mikið af því, sem þá var sagt, hafi verið á rökum bygt; en þetta er ekki hið eina, sem ég hefi heyrt eða lesið um íslenzku þjóðkirkjuna, síðan ég kom til Vesturheims. Eg hugsa því heim til íslenzku þjóðkirkjunnar, ekki ein- ungis eins og hún var í æsku minni, á íslandi, heldur að einhverju leyti eins og hún hefir verið um aldaraðir. Auð- vitað ætla ég mér ekki að fara að rita sögu hennar, og ekki loka ég augunum heldur fyrir því, að sumt er í þeirri sögu erfitt. En er það ekki sannleikur, að mikið er þar af göfug- um dæmum, sem örfa hug vorn til dáða og drengskapar, til mentunar og mannúðar, til kristilegra afreksverka? Með kirkjunni komust skólar á fót á íslandi. Á báðum biskupssetrunum, Skálholti og Hólum, voru stofnaðir skólar, sem stóðu margar aldir. Önnur mentaból risu upp í Haukadal og Odda, sem áunnu sér mikla frægð á íslandi, ávöxtur einnig af starfi kirkjunnar. Sömuleiðis var hin dá- samlega, forna ritlist íslendinga í mjög nánu sambandi við kirkjuna. Mennirnir, sem voru í broddi fylkingar í þessum menn- ingarþroska, voru lærdómsmenn og göfugmenni. ísleifur, sonur Gissurar hvíta, er varð biskup í Skálholti 1056, “var ágætismaður mikill, og lét sér ant um að efla kristna trú. Til þess að bæta úr prestaskorti, tók hann ýmsa unga menn til kenslu, er síðar urðu prestar”. Um Gissur, son hans og eftirmann er sagt, að hann hafi verið “bæði konungur og biskup”, yfir íslandi, frábær skörungur og afar vinsæll

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.