Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1947, Page 16

Sameiningin - 01.11.1947, Page 16
172 Sameininoin maður. Um Jón Ögmundsson, fyrsta biskup norðurlands, að Hólum í Hjaltadal, er þetta sagt: “Hann fékk, á skömmum tíma vakið svo mikinn áhuga í trúarefnum, að fólk kom hópum saman víðsvegar að til að hlýða á kenningu hans og presta hans. Á stórhátíðum, svo sem páskum og hvítasunnu, voru þannig oft saman komin á Hólum þrjú til fjögur hundruð manns, karlar og konur. Á sumrin fór svo biskup um biskupdæmið og heimsótti menn sjálfur. Einnig stofn- aði hann skóla á Hólum og var þar fjöldi manna við nám”. Þar voru jafnvel kend þjóðleg fræði. í lúterskum sið kannast enn allir íslendingar við Guð- brand Hóla-biskup, er vann það nærri ótrúlega þrekvirki að láta prenta alla Biblíuna á íslandi, á íslenzku, ásamt mörgum öðrum bókum, í bundnu og óbundnu máli; Jóri biskup Vídalín, er mælskastur hefir verið allra íslenzkra presta; og hið ódauðlega skáld Hallgrím Pétursson, sem Matthías Jochoumsson segir um: “Niðjar fslands munu minnast þín, meðan sól á kaldan jökul skín”. Það er ekkert skrum, enginn tómur orðaleikur, heldur hreinn sannleikur, að það er hvetjandi að hugsa heim til íslenzku þjóðkirkjunnar um margt það sem hún geymir í sögu sinni. Eg vík nú inn á annað svið. Flutningur íslendinga til Vest- urheims hófst um miðbik 19. aldar til Utah og í aðalþætti- sínum áriðl870. Nú eru þeir í stórum hópum á ýmsum stöð- um, bæði í Bandaríkjunum og Canada. Er unt að læra nokk- uð af þeim viðvíkjandi þjóðkirkjunni íslenzku? Um eitt skeið bar einna mest á tveimur íslenzkum prest- um hér vestra, en það voru þeir séra Jón Bjarnason og séra Páll Þorláksson. Þeir voru báðir lúterskir, en svo mikill kirkjulegur skoðana-ágreiningur varð milli þeirra, að það er enn í minnum haft. Skyldi mega finna nokkurt endur- skin íslenzku þjóðkirkjunnar hjá þessum andstæðingum báðum? Báðir höfðu mennirnir alist upp á íslandi og báðir lokið þar latínuskólanámi, en aðeins hinn fyrri hafði stundað nám við prestaskólann íslenzka. Þegar hann kom vestur, leitaði hann til Norðmanna í Bandaríkjunum og hugði til prestsstarfs meðal þeirra, en af því varð ekki, vegna þess að hann fann þar andastefnu, sem hann, að sumu leyti, gat með engu móti samþykkt. Sál þessa unga guðfræðings var þá orustuvöllur. fslenzkt sjálfstæði var að heyja stríð. Ann-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.