Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1947, Page 18

Sameiningin - 01.11.1947, Page 18
174 Sambininqin Um landnámsmenn íslenzka hér vestra, fólkið, sem frá íslandi kom og ruddi sér og afkomendum sínum veg í nýrri heimsálfu, hefir mikið verið talað og á þá hlaðið miklu hóli. Stundum hefir það verið sannleikur, en stundum gífur- legt, meira um það hugsað að láta það vera stórt heldur en að láta það vera satt. Framhald í næsta hefti. Thorvaldur Sveins- son, Skagfirðingur að ætt, andaðist að heimili sínu við Húsavick, Man., þann 1. nóv., 88 ára og 10 mánaða að aidri. Hann var ættaður úr Viðvíkursveit í Skagafjarðarsýslu. Hann kom fulltíða maður til þessa lands, og eftir nokkra dvöl á öðrum stöðum, kom hann til Nýja íslands og settist að í Víðines-bygð. Fyrir 50 árum síðan kvæntist hann Halldóru Albertsdóttir frá Steinsstöðum, bjó ávalt þar í bygð; oft áttu þau hjón við heilsuieysi að stríða, og stundum við þröng kjör. Þau eignuðust mörg böm og mannvænleg. Thorvaldur átti yfir góðum hæfi- leikum að ráða, prýðilega vel greindur, sjálfstæður, stiltur og þrekmikill. I safnaðar- og kirkjumálum umhverfis síns, var hann affarasæll og áhugasamur, sat oft á kirkjuþingum, hjálpsamlegur og skilningsríkur prestum þeim er söfnuð- inum þjónuðu. í all-löngu hinzta stríði var hann þolinmóður og hugrakkur. Með honum á Víðines-söfnuður trúföstum og ágætum manni á bak að sjá.. — Hann var kvaddur hinztu kveðju að heimili sínu þann 3. nóv.. ”Þreytti faðir, sof í ró!” Safnaðarleiðtogi látinn s. ó.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.