Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 3
Sameininping_______________________________ A monthly, In support o£ Churc’h and Christianity amongst Icelanders. Publishecl by The Evangelical Lutheran Synod of North America Eclitor: EEVERAND S. OLAFSSON, Box 701, Selkirlt, Manitoba, Canada Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man., Can. KIRKJUÞINGSBOÐ Hér með tilkynnist öllum hlutaðeigendum að 65. kirkju- þing Hins evangelizka lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi verður haldið, ef Guð lofar, í Argyle prestakalli í Manitoba, frá 22. til 25. júní 1949. Þingið hefst með guðsþjónustu og altarisgöngu í kirkju Frelsissafnaðar að Grund, Manitoba, miðvikudaginn 22. júní 1949, kl. 8:00 e.h. (Standard Time). Sæti á þingi eiga embættismenn kirkjufélagsins, prestar þess, og fulltrúar frá hinum ýmsu söfnuðum kirkjufélagsins, einn fulltrúi fyrir hverja hundrað fermda meðlimi eða brot af hundraði. Þó má enginn söfnuður hafa fleiri en fjóra fulltrúa. Bandalagi lúterskra kvenna eru heimilaðir tveir fulltrúar. Ungmennasambandi kirkjufélagsins eru heimilað- ir þrír fultrúar: einn þeirra frá Sléttufylkjahéraði, einn þeirra frá North Dakota-Minnesota héraði, og einn þeirra frá Kyrrahafsstrandarhéraði. Söfnuðir eru beðnir að kjósa kirkjuþingsmenn og vara- þingmenn að minsta kosti mánuði á undan kirkjuþingi, og senda síðan nöfn þeirra tafarlaust til forseta og skrifa kirkju- félagsins, og til prests eða móttökunefndar á þingstaðnum. (Utanáskriftir: Séra E. H. Fáfnis, Mountain, N. Dak.; Séra Eric H. Sigmar, Glenboro, Man.) Samkvæmt lögum kirkjufélgsins, ber öllum prestum þess að sækja þing, og öllum söfnuðum þess ber að senda fulltrúa. Kjörbréfum og áfsökunum skal framvísað á fyrsta þingdegi. Dagsett í Arborg, Man., 9. maí 1949. Séra Egill H. Fáfnis, Forseti Séra B. A. Bjarnason, Skrifari

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.