Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 11
SAMEININGIN 73 ekki leyft að prédika yfir útvarpið án þess að ræður þeirra yrðu áður yfirfarnar og þeim gefið leyfi til að flytja þær. Svar biskupsins var það að undir þeim kringumstæðum mundu þeir alls ekki nota útvarpið. Eftir þetta jókst óhugur, þeirra sem við völdin sátu, á Ordass biskupi. Tilraunir voru gerðar til að þvinga hann til að viðurkenna alt fyrirkomulag sem hin nýja stjórn vildi koma á fót — Viðurkenna það fyrir hönd Lútersku kirkjunn- ar, því nú var hann aðal yfirmaður hinnar Lútersku kirkju í Hungary þar sem Bela Kafi Biskup hafði sagt af sér . . . Ordass sagði að það væri aðeins einn grundvöllur fyrir slíkan samning frá sinni hendi. Stjórnin yrði að gefa kirkj- unni leyfi til að hafa fulla umsjón á kirkjuskólunum sem að undanförnu; algjört trúarlegt frelsi yrði að ríkja og kirkjan yrði að hafa fult umráð yfir sjúkrahúsum sínum og barna- heimilum. Lúterska kirkjan í Hungary telur aðeins um 500,000 meðlimi, en hún hefir haft umsjón yfir 12 barnaheimilum ■— einu heimili fyrir ólæknandi börn og unglingaheimili fyrir flogaveika og þar að auki 60 líknarstofnanir af ýmsri tegund. — Hún hefur einnig starfrækt 400 skóla því um 7/10 hluti allra skóla í landinu eru starfræktir af hinum ýmsu kirkju- deildum, þó stjórn landsins leggi þeim til fé að nokkru leyti. 16. maí — var sú yfirlýsing birt að allir þeir skólar sem starfræktir hefðu verið af hinum ýmsu kirkjudeildum yrðu þaðan af undir umsjón stjórnarinnar. Blöðin fluttu áróðurs greinar gegn því fyrirkomulagi sem hefði átt sér stað í öllum þessum skólum. Reformeraða kirkjan, sem er þrisvar sinnum eins fjölmenn og sú Lúterska í Hungary, gaf sam- þykki sitt án mótstöðu, hinn aldurhnigni biskup hennar sagði af sér, sá sem tók við vildi fyrir hvern mun kaupa frið, og mótmælti ekki — í júnílok gengu hin nýju skólalög í gildi — þjónar kommúnista ferðuðust á milli skólanna með fötu og bursta og slettu svörtu máli yfir nafn kirkjunnar sem prentað hafði verið fyir ofan dyr skólahússins. Óeirðir og æsingar ríktu meðal fólksins. Ordass biskup var þögull og þungur á svip en neitaði með öllu að viðurkenna að stjórnin hefði nokkurn rétt til slíks. Þann 24. ágúst var Ordass tekinn fastur. — Lögreglu-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.