Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 12
74 SAMEININGIN menn leituðu í húsi hans og skrifstofu; í skjölum hans von- uðu þeir að finna eitthvað það er gæti réttlætt það í augum fólksins að hann yrði settur í fangelsi. — Þeir sögðust hafa fundið það sem þeir leituðu að: Þegar Ordass ferðaðist um Bandaríkin árinu áður lagið hann sig fram til að biðja um hjálp fyrir fólk sitt. Trúbræður hans þar brugðust vel við, gegnum Lutheran World Action sendu þeir $216,000, og nú kom ásökun að þessi upphæð hefði ekki verið borguð í gegn um stjónarbanka í Hungary. — Um þetta var Ordass sakað- ur, tveir samverkamenn hans voru sakaðir um óheiðarlegan fjárdrátt. En öllum þessum mönnum var lofað því að þessi mál yrðu látin falla niður ef þeir segðu af sér og hættu allri mótspyrnu. — Ordass neitaði að segja af sér, hinir tveir gerðu það. Fyrir rétti viðurkendi yfirmaður bankans að munnleg tilkynning hefði komið til sín um fjárveitingu Lutheran World Action. Afskrift af skriflegri tilkynningu til bankans sem var í skrifstofu Ordass var tekin þaðan þegar lögreglu menn leituðu í skjölum hans. Meðan á réttarhaldinu stóð mættu söfnuðir hinnar Lút- ersku kirkju til bænahalds á hverjum morgni, þeir báðu fyrir hinum hugrakka og göfuga leiðtoga sínum sem neitaði að kyssa á hönd kúgara sinna. Fólkið elskaði hann og vissi að hann hafði ekki gert sig sekan í neinu. í lok réttar haldsins var Ordass leyft að flytja ræðu sér til varna. Hann sagði að friður ríkti í sálu sinni, því í allri auðmýkt frammi fyrir Guði hefði hann beðið hann að sýna sér ef hann hefði að einhverju leyti misboðið stöðu sinni eða gert rangt. Eftir þeim skilningi sem Guð hefði veitt sér, væri samviska hans hrein. Yrði hann fríkendur kvaðst hann vilja gleyma þessari reynslu og þeim rangindum sem hann hefði verið beittur og vilja starfa fyrir kirkju sína og ættland eftir þeirri leiðsögn sem andi guðs mundi gefa hon- um. — Ef þeir legðu það á samvisku sína að dæma hann sekann, mundi hann taka því með jafnaðargeði treystandi því að jafnvel í því dómsáfelli mundi guðs vilji koma í ljós og leiða til stærri sigurs á einhvern óskiljanlegan hátt. Ordass biskup var dæmdur til tveggja ára fangelsis vistar og borgaraleg réttindi tekin af honum í fimm ár. — Sekt sem nemur $300 var hann dæmdur til að borga.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.