Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 9
SAMEININGIN
71
verið ætlað fulltrúa frá United Lutheran Church, sem þá
flytur erindi fyrir hönd félags síns, um hin ýmsu vandamál
kirkjunnar, sem einnig eru oss tilheyrandi. Valdir menn
hafa þessir menn jafnann verið. Þetta er viðtekinn siður að
fulltrúi U.L.C.A. heimsæki hverja kirkjudeild sem sam-
bandi þessu tilheyra og er ekkert um það að segja annað
en að þetta fyrirkomulag er í alla staði eðlilegt og samkvæmt
hérlendri félagsvenju. Þeim er línur þessar ritar virðist að
óbeinlínis, og án þess að þessir fulitrúar eigi nokkra sök
á því sjálfir, séu þeir þó að verða meira aðalatriði á þingum
vorum, aðalatriði, sem svo mikið snýst um. Þessvegna kann
framkvæmdarnefndinni að finnast, ef hún þá hefir gjört
sér fulla grein fyrir því, að minni þörf sé á fyrirlestrum úr
vorum eigin hópi. En haldi þetta áfram, er með þessari
stefnu verið að gefa upp meira en góðu hófi gegnir af voru
eigin sjálfstæði, sem U.L.C.A., er engin þægð í, en oss sjálf-
um er óheppilegt, og hættulegt, 1 ljósi vorar eigin sögu, —
og þess fordæmis sem kirkjuþing vor hafa sett, í meira en
60 ár.
En þá kann einhver að segja að ef að annar fyrirlestur
sé haldinn, og honum ætlað heilt kvöld, ásamt væntanlegum
umræðum er fyrirlesturinn gæfi tilefni til, þá yrði óhjá-
kvæmilegt að lengja þingtímann. En væri ekki unnt að fara
því sparlegar með tímann á sjálfum starfundunum, en stund-
um hefir átt sér stað? í umræðum um mál, áður en þau eru
sett í nefndir, einnig, þegar að nefndarálit eru rædd, er stund-
um óþarflega lengi að verki verið.—Ályktanir eru svo prent-
aðar í Gjörðabók þingsins, sem ærið fáir lesa, og enn færri
kaupa. Lítið, — miklu minna en skyldi er gert til þess að
kynna málin fyrri söfnuðunum milli þinga, einkum í síðustu
tíð; ályktanir þinga því eingöngu kunnar þeim er þing
sitja — og Gjörðabók lesa, sem að eru alt of fáir; er þetta
mál því eitt af þeim sem nýjar leiðir þarf að uppgötva til
þess að störf kirkjuþinga vorra mættu tilætluð vekjandi
og blessandi áhrif með sér bera og út frá sér færa. —
Hér skal þá numið staðar að þessu sinni, ef til vill gerir
“Sameiningin” tilraun til að ræða önnur vandamál vor að
nokkru, áður en langt um líður.
S. ÓLAFSSON