Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 18
80 SAMEININGIN Hjónaband þeirra Hallgríms og Guðríðar hefir sennilega verið fremur hversdagslegt. Engin ástæða er til að ætla að það hafi verið neitt sérstaklega slæmt, að minsta kosti sjást þess engin merki utan þjóðsagnanna. Þögnin segir þar mest. Og hún sýnir í raun og veru ekki annað en að sambúð þeirra hafi verið hversdagsleg.” Lokaorð höf. á fyr nefndum kafla bókarinnar virðast oss svo heilbrigð og sanngjörn, í ljósi þeirra sannana er hann hefir borið á borð, en þau eru á þessa leið: “Þau hafa ekki verið samrýnd þessi hjón. Þau hafa staðið hvort á sínum bakka með óbrúandi djúp á milli sín. Það er um hvorugt þeirra last. Hann fer með himinskautum og finnst alt smátt, sem niðri á jörðu er. Hún stendur þar niðri sem fólk er flest, og finst fátt um flug hans. Þessu getur farið fram án mikilla árekstra. En þau verða hvort öðru lítill styrkur. Hann verð- ur að reka sit andlega bú án hennar og hún jarðneska búið sitt án hans hjálpar. Að forminu eru þau hjón, en í reyndinni eru þau tveir næsta ólíkir einstaklingar.” (Framhald) ____________________*_____________________ ÍSLENZKI LÚTERSKI SÖFNUÐURINN í SELKIRK Selkirk söfnuður er 60 ára 9. júlí næstkomandi. Hefir Söfnuðurinn nú ákveðið að minnast afmælis síns Sunnudag- inn 19. júní, með hátíðlegum guðsþjónustum kl. 11:00 árdegis og kl. 7:00 síðdegis téðan sunnudag; fyrri guðþjónustan á ensku, en hin síðari á íslenzku, að mestu leyti. Veitingar og program er ákveðið í samkomuhúsi safnað- arins að kvöldguðsþjónustunni aflokinni. í ráði er að gluggi til minningar um frumherja safnaðarins (Memorial Window) verði afhentur og vígður við kvöldguðsþjónustuna.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.