Sameiningin - 01.01.1940, Side 3
^ameininnin.
Mánaðarrit til stuffnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. % Vestrheimi
Ritstjórar:
Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A.
Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A.
Séra Rúnólfur Marteinsson, 49 3 Lipton St., Winnipeg.
Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
55. ÁRG. WINNIPEG, JANÚAR, 1940 Nr. 1
Skuggar og geislar í lofti
um áramótin
Eftir séra Jóhann Bjarnason.
Árið 1940 byrjar miður en skyldi. Sól Guðs, seni
jafnan rennur upp yfir réttláta og rangláta, sendir geisla
sína yfir jörð vora. En jörðin sjálf blóði drifin. Vonzka
mannanna og villimenska æða fram og aftur. Fráfallnir
einvaldar hlífa engu. Líf sjálfra þeirra er það eina, sem
þeir meta nokkurs. Öll önnur mannalíf éru þeim einskis
virði, nema til þess eins, að nota þau í þjónustu þeirrar
helstefnu, sem þessir höfðingjar hafa aðhylst og eru að
beita sér fyrir.
Þrír vandræðamenn í Evrópu eru valdir að mestu
hörmungunum þar. Einn þeirra byrjaði með því að ráðast
á nærri varnarlausa svertingjaþjóð, er átti sérstæða menn-
ing og kristna kirkju alla leið frá fornöld. Fólkið var
brytjað niður. Þjóðhöfðingi þess, er bar keisaranafn, var
rekinn frá völdum. Landið síðan gert að skattlandi, rétl
eins og hinir heiðnu Rómverjar voru vanir að gera í forn-
öld, þegar þeir unnu ný Iönd, og vegur þeirra var sem
mestur og veldi þeirra stóð sem hæzt.
Nokkuru síðar gengur þessi sami höfðingi aftur til
verks og leggur þá undir sig smáríki hvítra manna. Sú
herferð varð ekki eins blóðug sem hin fyrri, því konungur
þess ríkis sá sér ekki fært að veita mótstöðu og flýði úr