Sameiningin - 01.01.1940, Page 5
3
mikil, að af samningum gal ekki orðið. Voru þó Finnar
svo eftirgefanlegir, að þeir vildu nærri alt til vinna að halda
friði, alt nema að glata sjálfstæði sínu. Stalin hugðist hafa
ráð þeirra i hendi sér. Vildu Finnar ekki ganga að þeim
skilmálum sem hann setti, skyldu þeir fá sömu litreið sem
Pólland hjá Hitler. í þessu stappi gekk um nokkurntíma.
Var búist við að tilraun til að semja yrði hafin á ný. úr
því varð þó ekki. Stalin vildi heldur skamta sér réttinn
sjálfur. Að dæmi Hitlers sendi hann afarmikinn her inn
i Finnland, með nýjasta útbúnaði á sjó og landi, auk flota
af loftskipum með sprengjum þeim hinum öflugustu er nú
þekkjast. Átti Finnland að vera gereyðilagt á fáum dögum.
Fregnin um þetta illmannlega tiltæki Stalins barst um heim
allan á svipstundu. Vakti atburðurinn feikna athygli meðal
allra hugsandi manna. óttuðust menn að grimd harð-
stjórans og hinn mikli herbúnaður hans og mannafli mundu
skjótlega gera út af við hina smáu þjóð. Þetta fór þó
nokkuð á annan veg. Vörn Finna og hreysti er heimsfræg
orðin. Hal'a þeir unnið hvern sigurinn á fætur öðrum.
Mannfall Rússa ógurlegt, að því er hlöð herma. Þó er ekki
búist við að þessi frækilega vörn Finna eigi sér langan
aldur, nema þeim komi mikil hjálp utan að. Sú liðveizla
er byrjuð. Allmikill hópur sjáll'boða, frá ýmsum löndum,
er kominn til liðs við þá. Þar að auki mikið af herbúnaði
og von á meiru.—
Eftirtektavert er það í þessu sambandi, að Finnar eiga
eina fjóra afbragðs hershöfðingja, er sumir hafa lært hjá
Þjóðverjum, aðrir hjá Frökkum. Aftur hefir Stalin verið
smátt og smátt að láta skjóta sína hershöfðingja, þar til
fáir eru el'tir. Hermálum nú stýrt af lítt reyndum for-
ingjum. Tortryggni harðstjórans hefir mest lagst á móti
hinum meiriháttar mönnum, bæði hershöfðingjum og öðr-
um, og hafa blóðböðin og aftökurnar sópað þeim burtu
hópum saman.
Þannig er þá ásigkomulagið í heiminum í byrjun árs
1940. Tvö grimmileg stríð í Evrópu, auk styrjaldarinnar
miklu í Austurálfu. Þar að auki feikna hörmungar í lönd-
um Tyrkja, af völdum ógurlegra jarðskjálfta, sem þar hal'a
gengið. Við þetta má svo bæta óvenjulega tíðum slysförum,
á sjó og landi, auk flugslysanna, sem enn taka líl' fjölda
manna.
Þrátt fvrir alla þessa ljótu skugga á lol'ti, í byrjun