Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 6

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 6
4 þessa árs, er þó spursmál hvort útlitið í heiminum er ekki ögn skárra en var fyrir ári síðan. Þá létu þeir Hitler og Mussolini hið dólgslegasta. Stóð öllum heimi stuggur af afli því, er þeir þóttust þá ráða yfir. Nú er Mussolini sagður að vera að tapa áliti og fylgi heima fyrir. bæði sök- um sambands hans við Hitler og eins af áhrifum páfans nýja, Píusar XII., sein mun vera slingur stjórnmálamaður, auk þess sem hann er höfuð hinnar voldugu rómversku kirkju. Aftur hefir Ilitler minkað í áliti meðal þeirra, sem mikið eiga undir sér á Þýzkalandi, sökum bandalags hans við Stalin og rauðliða hans i Rússlandi. Munu Þjóðverjar yfirleitt hafa illan grun á því samfélagi. Þá hefir og Stalin fallið niður fyrir alt í áliti allra siðaðra manna, fyrir frum- hlaup hans á hendur Finnum. Rússar fyrir það gerðir rækir úr Þjóðbandalaginu. Þeir fyrsta þjóðin að hljóta þá háðung. Ofan á þetta hefir bæzt vesalmannleg hermenska þeirra í Finnlandi. Ótti jijóðanna við afl og veldi Rússa hefir stórum minkað. Þá hefir og Hitler tapað á því að koma sér í hálfgert rifrildi við tvö ríki í Suður-Ameríku, í sambandi við ófarir Þjóðverja i sjóorustu við Breta í því nágrenni. Var áður að gera miklar tilraunir að ná þar vin- sældum og ítökum um leið. Á hinn bóginn eru Bretar og Frakkar að koma upp hjá sér þeim óskapa herbúnaði, að slíkur hefir aldrei áður sézt í allri sögu heims. Þegar svo óhappamennirnir, sem friðinn rufu, eru oltnir af stóli, og friður verður saminn á ný, þá mun það vera sterklega i hugum hinna beztu manna, að samningar verði svo sann- gjarnir, að friður verði trygður um langan aldur.— Að því er ísland snertir má segja, að bæði land og þjóð fari inn til nýja ársins með feikna mikla og ágæta auglýs- ingu, sökum stórmerkilegrar þátttöku í veraldarsýningunni í New York síðastliðið sumar. Mun það gleðja alla góða fslendinga, bæði heima á ættjörðunni og í útlöndum. Þá má og telja það framfaraspor þar heima fyrir, að landið hefir fengið þjóðstjórn, i stað flokksstjórnar, sem er miður hentugt fyrirkomulag í smáu þjóðfélagi og hefir ýmsa ó- kosti. Ennfremur má geta þess að nýr biskup hefir tekið þar við hirðisstarfi hinnar íslenzku þjóðkirkju. Mörgum hér vestra kom þó óvart kosning hans, er stafað mun hafa af nokkurum ókunnugleika, enda varð atkvæðamunur milli hans og þess manns, er flestir hér bjuggust við að yrði fyrir valinu, sára lítill. Hitt var manni þó nokuð kunnugt, að herra Sigurgeir Sigurðsson er mætur maður og er afar-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.