Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 9

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 9
7 nefndar). Verður hans ætíð minst sem einarðs og atkvæða- mikils kennimanns og kirkjuleiðtoga. Hann var hvort- tveggja í senn íslenzkur með afbrigðum, en þó heill og ó- skiftur Ameríkummaður. Glögt dæmi var hann þess hve auðveldlega íslendingar yfirleitt hafa fallið inn í hérlent þjóðlíf. Þeir hafa orðið Amerikumenn á svipstundu, og hin íslenzku einkenni þeirra og arl'ur hafa svo fallið í far- veg hins ameríska. Þannig er það rétt lýsing þeirra að þeir eru Ameríkumenn af íslenzkri ætt og uppruna, en ekki ís- lendingar búsettir í Ameríku. Þessi skilgreining hefir þýð- ingu fyrir afstöðu vora og áhrif hér. — Séra Jóhann var Ijóst vitni þess að þeir eru ekki síðri Canadamenn eða Bandaríkjamenn, sem sýna sóma íslenzkum einkennum og arfi og láta það falla inn í heilsteypt amerískt líf. Hann var áhugamikill og ákveðinn kirkjumaður, en um leið og vegna þess áhugamaður einnig um alt er snerti sanna menn- ingu og mannlega velferð. Hann skilur eftir auðan sess, er ekki verður auðveldlega skipaður. Jarðarförin fór fram miðvikudaginn 24. janúar. Fyrst var húskveðja á heimilinu í Selkirk, flutt al' séra Valdimar J. Eylands kl. 10:30 f. h. Þarnæst var athöfn í kirkju Selkirk safnaðar. Tóku í henni þátt þeir séra Valdimar, séra Egill H. Fáfnis, séra H. Sigmar og séra K. K. ólafsson, er flutti líkræðuna. Enskur prestur talaði fyrir hönd presta- félags Selkirk bæjar. Söngflokkur safnaðarins jók mikið á hátíðleik athafnarinnar. Fjölmenni var viðstatt úr Sel- kirk, Winnipeg og víðar að. — Hélt svo líkl'ylgdin til Gimli. Var þar fyrir fjölmenni mikið úr öllum bygðum Nýja is- lands. í athöfninni í kirkjunni þar tóku þátt þeir séra H. Sigmar, séra S. S. Christophersson, séra Carl J. Olson, séra K. K. Ólafson og séra Sigurður Ólafsson, er flutti líkræðu. Þar einnig lagði söngflokkur safnaðarins til mikilvægan skerl' til hinnar áhrifamiklu athafnar. Greftrunin fór fram í grafreit Gimli safnaðar. Veitti séra Sigurður Ólafsson þar hina síðustu þjónustu með aðstoð séra Egils H. Fáfnis. Sameiningin tjáir frú Helgu ekkju séra Jóhanns, er svo vel og lengi hafði staðið með honum í starfinu, börnum þeirra og sifjaliði öllu, hjartfólgnustu hluttekningu i þeirra þungu og óvæntu sorg.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.