Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1940, Page 15

Sameiningin - 01.01.1940, Page 15
13 Safnaðarfundur Fyrsti lúterski söfnuður í YVinnipeg hélt ársfund sinn 5. dag desembermánaðar síðastl. Skýrslur allar sýndu á- stand safnaðarins í góðu ásigkomulagi. Auk þeirrar skil- greiningar, varð það aðalmál fundarins að ræða um inn- göngu í kirkjufélagasambandið mikla, United Lutheran Church in America. Lesendur “Sameiningarinnar” vita óefað allir, að því máli var hreyft á síðasta kirkjuþingi og þar samþykt að leggja hugmyndina undir úrskurð safnað- anna. Á þessum fundi gjörði Mr. Bjerring uppástungu um það að mæla með inngöngunni. Málið var all ítarlega rætt. Tóku til máls, auk uppástungumanns, Dr. B. J. Brandson, Hjálmar Bergman, Jónas T. Jónasson og fleiri. Dr. Brandson mælti eindregið með tillögunni, hinir á móti. Mr. Berg- man mintist þess, að hann hefði fyrir nokkrum árum tekið allmikinn þátt í að kveða þessa hugmynd niður; en hann kannaðist við, að Kirkjufélagið hel'ði staðið við orð sín að hreyfa ekki þessu máli í 5 ár. Hann sagði ennfremur að hann myndi beygja sig undir vilja meiri hlutans í þessu máli hver sem hann væri. Framkoma hans öll þar að lút- andi var hin drengilegasta. Á þessum fundi var samþykt að fresta atkvæðagreiðslu til áframhalds af þessum fundi, sem ákveðinn var um miðjan janúar-mánuð. Hann var svo haldinn þriðjudag- inn 16. janúar. Eg hygg, að þann fund megi nefna fyrir- myndar-safnaðarfund. Það var stjórnarnefndinni til sóma, hvað vel fundurinn var undirbúinn. Samkvæmt ráðstöfun hennar flutti Faul borgarráðsmaður Bardal vandað erindi um ástand og horfur kirkjufélags vors. Hann sýndi glögg- lega hvernig þær ástæður sönnuðu viturleik þess að tengjasl félagsböndum við United Lutheran Church. Þar var alt hóflega mælt og með sanngirni. Þessu næst flutti Mr. S. W. Melsted fróðlegt erindi um starfssvið United Lutheran Church. Hafði hann samið það að mestu eftir síðustu gjörðabók félagsins og samið af hreinustu snild. Þar var að finna ljósa skýring á öllu því helzta sem félagsskapurinn er að starfa. Alt erindið hafði verið fjölritað í skrifstofu Mr. G. F. Jónassonar, for- seta safnaðarins, og fékk hver fundarmanna eitt eintak, svo menn gátu fvlgst með á blaðinu, þegar þetta var lesið.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.