Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 6
196
Syrgja hér sveitir,
'Svanni og mögur,
Klerkmenn, kirkja
Og kristin þjóð.—
En mæðradaginn2)
Móðir faðmar
Heimkominn son
í himininn.
Jónas A. Sigurðsson.
Máni, nefndur Hólmgöngn-Máni, nam Skagaströnd
2> Mæðradagnrinn var í ár 10. maí.
Kirkjuþingið
ÞaÖ hófst með fjölmennri guðsþjónustu í hinni yngri kirkju
Garðar safnaðar í Norður Dakóta kl. 11 f. h. fimtudaginn þann
25. júní. Séra H. Sigmar þjónaði fyrir altari. Forseti kirkju-
félagsins flutti þingsetningarprédikun útaf Róm. 8, 28: “En vér
vitum, að þeim sem Guð elska, samverkar alt til góðs.j’ Að lok-
inni altarisgöngu, er kirkjuþingsmenn og aSrir tóku þátt í, var
þingið sett á venjulegan hátt.
Um fimtíu erindrekar safnaða sátu þingið, auk presta og
embættismanna. Því miður gat séra Sigurður Ólafsson frá Árborg
ekki sótt þingið vegna veikinda elztu dóttur hans, Evangeline.
Lézt hún á spítala i Winnipeg föstudaginn þriðja júlí. Hlut-
tekning og samhygð í ríkum mæli á þessi bróðir og fjölskylda
hans í þessum sára missi.
Þingið stóð yfir í þrjá daga. Tvo daga í kirkju Garðar-
safnaðar og þriðja daginn í kirkju Vídalíns safnaðar að Akra.
Guðsþjónustur voru fluttar i öllum kirkjum bygðarinnar kl. 11
f. h. sunnudaginn á eftir, og um eftirmiðdaginn voru kirkjuþings-
gestir og bygðarfólk í rausnarlegu boði hjá Víkursöfnuði á
Mountain. Um 1,400 manns munu hafa komið saman í skógar-
lundinum fagra viS samkomuhúsið á Mountain. Fór þar fram
hin ánægjulegasta skemtun. Það víxlaðist á söngur og stuttar,
f jörugar ræður. Auk þess skemti lúðraflokkur Mountain-bygðar.
Svo hinar rausnarlegustu veitingar handa öllum þessum mann-
fjölda.—Á hverjum þingdegi buðu konurnar þingmönnum í
eftirmiðdagskaffi. Voru viðtöikurnar allar sammerktar hinni
ljúfustu gestrisni.