Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 27

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 27
217 Jóns Bjarnasonar skóli heldur áfram átarfi Eins og kunnugt er, varð talsverður ágreiningur á nýafstöðnu kirkjuþingi viðvíkjandi Jóns Bjarnasonar skóla. Aðal ágrein- ingsefnið var viðvíkjandi því, hvort safna skyldi fé til skólans með því móti að leggja á söfnuðina hlutfallslegar upphæðir af reksturs- fé því, sem við þarf, eða reiða sig algerlega á frjáls framlög. Mjög ákveðin mótspyrna kom frarn gegn skyldugjaldi á söfnuð- ina í þarfir skólans, ekki einungis frá þeim, sem litla trú hafa á skólanum, heldur líka frá ákveðnum meðmælendum hans. Var mótspyrnan svo ákveðin, að í flestum tilfellum rnyndi hún hafa ráðið atkvæðum hlutaðeigenda um það, hvort skólinn skyldi halda áfram eða ekki. Út af því var borin fram sú tillaga í þinginu, er réði úrslitum. Hefir hún þegar verið birt almenningi, en skal hér endurtekin: “Að skólaráðinu sé leyft að halda áfram skólanum annað ár, ef það, ásanrt öðrurn vinum skólans, treystir sér til að standa straum af fjárhag skólans, með frjálsum samskotum.” Var þessi tillaga samþykt í einu hljóði og um leið lagt í hend- ur skólaráðsins, að ráða úrslitum málsins. Dylst víst engum, að þannig var mikil ábyrgð lögð skólaráðinu á herðar. Því var trúað fyrir miklu vandamáli og það skilyrði sett, að með frjálsum samskotum einum skyldi reksturskostnaði skólans borgið, að svo miklu leyti, sem hann væri borinn af al- menningi, ef skólinn héldi áfrarn. Þann 6. og 7. júlí hélt skólaráðið fund til að ráða málinu til lykta. Tók það málið til hinnar ítarlegustu og alvarlegustu íhug- unar. Það leit á sögu skólans. Að hann var stofnaður fyrir til- stilli vors ágætasta manns, dr. Jóns Bjarnasonar, var nefndur eftir honum, til að heiðra minningu hans og styðja þær hugsjónir, sem honum voru hjartfólgnastar—kristindóm og viðhald íslenzkrar tungu og menningar; að hann hefir verið rekinn í átján ár og að mestu leyti verið ræktur fjárhagslega af frjálsum samskotum, að hann hefir unnið sér vaxandi álit hjá mentamáladeild Manitoba- fylkis og þeim almenningi, er starfs hans hefir notið, fyrir að skila nemendum sínum undir próf betur undirbúnum en aðrir skólar alment, og það, sem mest er um vert, að kristileg áhrif skólans og fræðsla hafa notið sín greinilega í skólalífinu, og íslenzku kenslan verið rækt með alúð og góðum árangri; og síðastl. ár fór bæði að-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.