Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 23
213
Undir útgáfumál heyrir “Sam.” sérstaklega og útgáfa
Gjörðabókar.
Hér hefir aðeins verið hreyft við málum. Þau krefjast
umhugsunar og meðferðar frá ykkar hálfu, háttvirtu kirkju-
þingsmenn, þannig, að allir leggi si!g fram af heilum hug.
Áhugi, bróðurhugur og traust til Guðs liggja til grundvallar
réttri meðferð málanna. Guð gefi, að þetta kirkjuþing megi
í sannleika verða málefni Guðs ríkis til eflingar.
K. K. Ólafson.
Kirkj a Herðubreiðar-söfnaðar
í Langrutb, Man.
Verk var hafið við hana sumarið 1929, en í júlí 1930 var
hún vígð af forseta kirkjufélagsins, séra Kristni K. Ólafson
með aðstoð sóknarprestsins, séra Hjartar J. Leo. Húsið var þá
nokkurnveginn fullgert, þó ýms tæki vantaði í hana. Sumt af
því hefir komið síðan og má þar nefna sérstakar gjafir ein-
staklinga. fvar Jónasson og dóttir hans, Mrs. Thordarson, gáfu
skírnarfont; Mr. og Mrs. Ólafur Egilson gáfu tvo gasolíu lampa;
og Mr. og Mrs. Jón Halldórson, ásamt Mrs. Lilju Alfred, gáfu
kertastjaka á altarið.