Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 14
204 Hin stórvægilega bylting er óhjákvæmilega á sér stað á vaxt- arárum yngri lærisveina, útheimtir stöðuga hluttekning og hjástoð karla og kvenna, sem sjálfir eru sérfræðingar hvað andlegt líf snertir. Og ]?essa leiðsögu geta ekki ríkis háskólar gefið eins og fyrirkomulagi þeirra er nú fariö. \éor brýnasta þörf, er varðar meiru en alt annað, er kristin- dóms kensla, er tengir allar vorar margvíslegu lærdómsgreinir við lífið í Guði. Slík kensla gæfi öllu öðru námi þýðing og tilgang. Vísindamaðurinn sæi sína sérfræði sem einn þátt í hinni yfir- gripsmiklu þekking, er túlkar Guð og leiðir hans lífsþroska til mannsins. Sá, er legði stund á bókmentir, myndi finna í sögu mannsins alda gamla leit eftir æðri og fyllri sjálfstilveru, og hann myndi bera allan auS alls lærdóms og leggja hann sem fórn við fætur hans, sem er alstaðar nálæg uppspretta lífsins og þekkingar á lífinu, og lotning og tilbeiðsla myndi aftur eiga dvöl á jörðunni. Kirkjan á sín eigin verksvið sem samfélag þeirra, er smám sarnan eignast Krist-lífið, sem bænaskóli og sameiginleg Guðs- dýrkun, þar sem þau djúp sálarlífsins eru snortin, er liggja bæði neðar og ofar en þau svið, er þekkingin nær til, og þar sem ógn og lotning fæðast. Kirkjan birtir einnig líf fyllra og virkilegra en það líf er veröldin býður. Auk þess fer kirkjan með það umboð er leggur máttuga, græðandi hönd á mannlegan breysk- leika og mannlega synd. . En háskólinn hefir einnig sitt hlutverk. Það er ekki fyrir kirkjuna að leggja á þá stofnun refsandi hönd né hömlur á leit hennar eftir sannleikanum. Það er fremur kirkjunnar, að veita þeim sem kenna og hinum sem læra af hennar eigin auði og auðg- andi þekking á Guði. Háskólanum heyrir til það hlutverk að lesa saman, skýra og lýsa yfir hinum margfalda vitnisburð um Guð í öflum náttúrunnar og í lífi mannanna, og tengja þá alla hinu dýpra og helgara lífi kirkjunnar í Guði. Þannig mun há- skólinn fást við alheiminn sem heild, en ekki sem einangruð, óskyld þekkingarbrot, meðan kirkjan hagnýtir sitt þejkkingar forða-búr til að auðga sína eigin sívaxandi andlegu reynslu. Allur heimurinn leitar með ákefð að ávöxtum af vísindum og upplýsing samtíðarinnar. Að gefa heiminum mentun án kristindóms er eyðileggingarstarf. Það er hið fyrsta ætlunarverk kirkjunnar, að ná á þann hátt til hinna svonefndu kristnu þjóða, að öll vor mentun megi verða kristileg mentun, er stöðugt leiði á hærri svið, til æðra lífs í Guði. Þegar slík mentun er svo flutt út til heiðinna þjóða, mun hún bera þeim vitni um það sem mikið er í menning vorri, og leysa úr læðingi það' sem gott er í fari heiðinna manna og þannig auðga framtíðina.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.