Sameiningin - 01.07.1931, Qupperneq 7
197
Tveir seinni þingdagarnir byrjuðu einnig meÖ sérstökum
guÖsþjónustum. Séra N. S. Thorláksson stýrði hinni fyrri og
flutti stutta prédikun um erlent trúboð. Séra J. A. SigurÖsson
stýrÖi hinni síðari og var umtalsefni hans “Þröngir vegir.”
Trúmálafundur þingsins var haldinn á fimtudagskveldið.
Umræðuefni: “Aðferðir til að vekja áhuga fyrir kirkjulegu
starfi.” Málshefjandi séra Egill H. Fáfnis. Verður erindi hans
birt í Sameiningunni. Voru umræðurnar hinar uppbyggilegustu
og tóku allmargir til máls.
Tveir fyrirlestrar voru fluttir. Á föstudagskveldið flutti
dr. Björn B. Jónsson fyrirlestur, er hann nefndi “Þörfin að af-
kvista.” Hefir hann þegar verið birtur í Sameiningunni. Urðu
um hann nokkrar umræður. Duldist ekki að mjög voru skiftar
skoðanir um ýmislegt í erindi þessu, þó allir mettu hve myndar-
legt það var og sköruglega flutt. Mjög hófstilt voru mótmælin
er komu fram, en þó af fullri alvöru. Kemur erindið víða við og
gefur tilefni til alvarlegrar íhugunar. Mér finst það þroskamerki
að umræður um vandamál, sem ágreiningi valda, eru hjá oss nú
lausari við persónulegan blæ en oft áður, þó full sannfæring fylgi.
Á þeim grundvelli geta umræður komið að fylstu gagni. Mæli
eg með því, að menn beri saman til athugunar ummæli í ritgerð
eftir dr. Mackay í þessu tölublaði Sameiningarinnar um kristilega
skóla og þörf á þeim, og niðurstöðu þessa fyrirlesturs. Við al-
hliða íhugun græða öll mikilvæg málefni. Þannig afkvista menn
hvor hjá öðrum, en muna þó að fleira ræður heilbrigði en afkvist-
un ein. Tel eg því að þessi snjalla hugvekja dr. Björns muni gera
mikið gagn, bæði vegna þess að hún vekur athygli á mörgu, sem
kirkjan þarf að vera á verði gegn, en líka vegna þess, að hún
mun skýra í hugum margra jafnvel þau atriði, sem þeir ekki eru
fyrirlesaranum sammála um.—Á laugardagskveldið flutti séra G.
Guttormsson fyrirlestur um “Niðurrif lögmálsins” í Vídalíns-
kirkju. Ekki gafst þá neinn tími fyrir almennar umræður, því
þingfundur var haldinn á eftir og stóð frarn yfir miðnætti. Verður
þetta erindi einnig birt í Sameiningunni.
Engin ný mál komu fram á kirkjuþingi. Alls voru átta mál
á dagskrá. Skal vikið að þeim hér nokkuð, en þó ekki í röð.
Hagur Betel stóð í blóma eins og áður. Jóns Bjcirnasonar skóli
taldi 82 nemendur á liðnu ári og tekjuhalli aðeins um $400.00.
Skal hér ekki vikiö frekar að því máli, heldur vitnað í sérstaka
ritgerð um það. Sunnudagaskólarnir voru ræddir af áhuga, og
kom þar fram að við eigum þar orðið að mestu fulla samleið með
hérlendri kirkju og notum hjálparrit ensk-lútersk líka þar sem
kensla er á íslenzku. Bent var á þörfina að einangra sig ekki í