Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1931, Page 11

Sameiningin - 01.07.1931, Page 11
201 laust eitt af okkar beztu þingum—þing, er bar vott eindrægni, bróÖurþels, áhuga og nærgætni. Mættum vér sífelt betur færast i horfið. —K. K. Ó. Kirkjuskóli og mentun Eftir dr. John Mackay, skólastjóra Manitoba College í Winnipeg. Dr. Mackay er af skozku hálendingakyni en fæcldur og uppalinn í Ontariofylki. Hann útskrifaðist af Toronto-háskóla, en nam gu8- fræöi í Glasgow á Skotlandi. Hann var um tíma prestur stórrar Presbytera kirkju í Montreal, síðar forstööumaður Presbýtera-skóla í Vancouver. Þaöan kom hann hinga'ð fyrir 10 árum síðan til þess að vera skólastjóri Manitoba College, en sá skóli er nú prestaskóli sameinuðu kirkjunnar canadisku fyrir Manitolta. Dr. Mackay er frá- bærlega skýr maður og lærður maður í bezta lagi. Hann á afar mikl- um vinsældum að fagna bæði sem prédikari og fyrirlesari. Hann var valinn til þess að flytja prédikunina á guðsþjónustunni, sem haldin var við stjórnarhyggingu Manitobafylkis á 60 ára afmælishátíð þess. Með nokkrum öðrum merkum mönnum úr Canada var hann fyrir 2 árum sendur til Kína og Japan til áð athuga fólk og ástand þar í því augna- miði að hlynna sem bezt að vinfengi og samvinnu Kyrrahafsþjóðanna. Síðastliðinn vetur var hann einn nefndarmanna er stjórnin hér útvaldi til þess að ferðast um bygðir útlendinga i Vestur-Canada til þess að eignast sem allra réttasta hugmynd um ásigkomulag þeirra. Dr. Mackaj' er víðsýnn maður og drengur hinn bezti. Honum má óefað skipa á lækk með fremstu kirkjuhöfðingjum Canada. Ritgerð sú. sem hér birtist í íslenzkri þýðingu, var rituð í vetur fyrir ársrit skóla vors. Frumkirkjan var samfélag þeirra rnanna og kvenna er lifðu í Kristi. Sérhver meðlimur var boðberi guðspjallsins og kirkjan útbreiddist óðfluga um hið róntverska ríki, einkum fyrir starf- serni óbreyttra manna og kvenna. Brátt hófst þó kennimannlegt embætti sem sérstakt starf og klerkastétt myndaðist, er hafði nteð höndum leiðsögu kirkjunnar fyrir handleiðslu heilags anda. Þessir fyrstu leiðtogar voru mentaðir undir umsjón Grikkja og Gyðinga og urðu nýir menn að hugsun og lífi fyrir guðspjall Krists. En önnur kynslóð kennidómsins jtarfnaðist frekari ment- unar undir ttmsjón kristindómsins. í því skyni risu upp skólar klaustranna tun gervalt ríki Rómverja. Þessir skólar voru eink- um sniðnir fyrir kennimenn og þeir urðu grundvöllur mentaskóla og háskóla nútimans. Smám saman var öðrttm kenslugreinum bætt við hinn upprunalega undirbúning undir prédikun orðsins

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.