Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1931, Side 16

Sameiningin - 01.07.1931, Side 16
206 Arsskýrsla forseta 1931 Þegar vér komum saman á kirkjuþingi fyrir ári síðan, var það alment álitið, að fjárkreppa sú, er þá í meir en hálft ár hafði Jamað alt viðskiftalíf hér í álfu og í flestum öðrum lönd- um, hlyti von bráðar að taka enda. Því var alment haldið fram, að ástandið ekki gæti versnað, o'g sú skoðun átti jafnvel megin-þátt í því að ráða úrslitum í alþjóðar kosningum um það leyti. Nú sjáum vér, hvílík skammsýni þetta var, því síðan hefir ástandið vitanlega hríðversnað, án þess að nokkur glögg merki séu til þess, að farginu létti af. Vekur þetta áfram- hald erfiðleika hinar ólíkustu hugarstefnur. Von og vonleysi, bjartsýni og svartsýni skiftast á að hertaka hugina. Er þetta ekki nefnt hér, til þess að fella á það nokkurn dóm eða til þess að gera upp á milli þeirra, sem svo ólíkt hugsa. Mundi tilraun til þess einungis leiða í ljós skammsýni vora á ný og.vanmátt vorn að lesa úr táknum tímans. En hvernig sem skynsemi manns og þekking leiðir til að :líta á horfurnar, á kristindóm- urinn að leggja til hið rétta jafnvægi í hugsun og tilfinningu. Það er misskilningur að álíta, að kristin trú og lífsskoðun láti sig engu skifta ástæður hins jarðneska lífs. Þvert á móti latur hún ekkert mannlegt vera sér óviðkomandi. Og hún míðar að því, að leiðrétta alt hið öfuga og óheilbrigða í mann- legu lífi, eftir sinni sérstöku leið. Hún kennir mönnum ekki einungis að þola og bera, heldur líka leggur hún til það afl og þau áhrif, sem leysir fjötrana og stefnir í betra horf. Án þess að kenna mönnum að sætta sig við hið óheilbrigða, eins og t. d. það, að samtímis líður heimurinn af hungursneyð og skorti og þeim vandkvæðum, er stafa af of miklum hirgðum, kennir hún þá þollund, sem hvílir á sársauka út af ástandinu, sem er samfara trygð við þá hugsjón, sem lýsir til hins betra. Ástæðurnar, sem nú eru fyrir hendi, hljóta að hafa sín áhrif á það yfirlit, sem hér verður gefið yfir líf og starf vors kristilega félagskapar á liðnu ári. Svo nátengt er hið ver- aldlega og andlega. En ekkert, sem komið hefir fyrir, eða komið getur fyrir, getur annað en lagt frekari áherzlu á verð- mæti þess anda og þeirra áhrifa, sem við kristindóminn eru tengd. Kristindómurinn kennir mönnum að lifa innan um ástæður þessa jarðneska lífs, sem svo mjög standa til bóta, án þess að æðrast, og að sýna trú sína á mátt hans til að end- urskapa mannlífið með ræktarsemi við líf hans og hugsjónir, hvernig sem horfa kann við í bili. Kenni ^rfiðleikarnir okk- ur þetta að einhverju leyti betur en áður, hafa þeir ekki verið ófyrirsynju, hvað okkur snertir. Og það er ekki tilviljun ein,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.