Sameiningin - 01.07.1931, Page 28
2l8
sókn að skólanum stórum vaxandi og íjárhagsleg afkoma hans
batnaöi a8 miklum mun, þrátt fyrir sárörðugt árferði. Með til-
liti til alls þessa og fleira, leit skólaráðið svo á, að því bæri að
halda áfram skólanum, og var sú samþykt gerð í einu hljóði.
Er nefndinni fagnaðarefni að tilkynna almenningi niðurstöð-
una. Með þesari ákvörðun vildi hún vernda heiður vorn og fá
fullvissu um undirtektir almennings á frjálsum grundvelli, þegar
eins vel horfir við með rekstur skólans að öðru leyti, eins og
raun er á. * Hún hefir tekið þessa ákvörðun vegna trúar á málstað
skólans og í trausti til þess, að fólk vort bregðist betur við beiðni
urn frjáls tillög, en við föstum kvöðum.
Þegar menn héldu heim af kirkjuþingi, fanst mér almenn
gleði ríkja yfir því, hve vel og bróðurlega hefðu jafnast mál í
mestu vandaefnum vorum. Hér hefir opnast leið, sem hvorki
hnekkir því að menn, sem skólanum unna og fyrir hann hafa lagt í
sölurnar, fái starfað að hjartfólginni hugsjón, né heldur þeim
misboðið, er hafna vildu skyldugjaldi. Eg trúi því hiklaust, að
menn finni til þess alment, aö það er þess vert að halda þessari
leið opinni.
Eg bið menn og félög fjær og nær að veita þessu athygli, og
framfylgja sinum beztu hvötum. Og geta má þess, að öll upp-
örfan og hjálp, sem veitist, kemur að því meira liði, sem minni er
dráttur á því að láta það í té.—Eéhirðir skólans er hr. Sigurður
Melsted, 673 Bannatyne Ave., Winnipeg, Canada.
8. júlí, 1931.
Á ferð til Seattle, Wash., 8. júlí, 1931.
K. K. ÓLAFSON, forseti kirkjufél,
Ólafsson
Sú harmafregn barst út um bygðir Nýja íslands, þann 4.
júli s. 1., að látist hefði þá daginn áður, þ. 3. júlí, á spítala
í Winnipeg, Evangeline Vigdís Ólafsson, elzta dóttir séra Sig-
urðar Ólafssonar, prests í Árborg, og fyrri konu hans, frú Hall-
dóru Ingibjargar (f. Hallson), er andaðist úr spönsku veikinni,
í Blaine, Washington, þegar séra Siguröur var þar prestur.