Sameiningin - 01.07.1931, Side 30
220
séra Sigurðar eru. H'efir frú Ingibjörg haft frábært lag á þvi,
að láta allan barnahópinn njóta hinnar sömu móðurlegu umhyggju
og sama ástríkis, eins og þau væru öll hennar eigin börn. Er
þetta vitanlega ekki eins dæmi. Ýmsum öðrum góðurn konum
hefir tekist eitthvað svipað, þar sem ástæður hafa verið svipaðar
eða þær sömu. En þar sem stj úpmóðurstaöan er rækt svo vel,
þvert ofan í hinn gamla almannaróm, þá verður þetta góð fyrir-
mynd, og ágæt til eftirbreytni fyrir aðrar konur, er taka kynnu
að sér skylda ábyrgðarstöðu.
Samhygð mjög hjartanleg og frábærlega almenn, með þeim
séra Sigurði, frú hans og fjölskyldu þeirra, kom fram við þetta
óvænta sorgar-tilfelli. Mintust margir á það í minni áheyrn og
allir á einn veg. Allir söknuðu innilega hinnar burtförnu ungu
meyjar. Sorg foreldranna og systkinanna varð urn leið sorg
allra þeirra mörgu og góðu vina.
Jarðarförin fór fram frá kirkju Gimlisafnaðar þ. 7. júlí.
Afar fjölmenni viðstatt. Útförinni stýrði A. S. Bardal útfarar-
stjóri og var allur útbúnaður af hans hendi hinn prýðilegasti. Séra
Jónas A. Sigurðsson og sá er línur þessar ritar töluðu í kirkjunni.
Sigurður Skagfield söngvari söng þar einsöng, en Gunnar Erlends-
son spilaði undir. Mrs. H. Benson, organisti Gimlisafnaðar, lék
á orgelið, en söngfólkið var bæði frá Gimli og Árborg. Friðsæll
blær og fagur hvíldi yfir athöfninni.—Jóh. B.
Lúterskur kirkjuhöfðingi prédikar
í útvarp Ameríkumanna
I
The National Broadcasting Company hefir boðið dr. Fred-
erick H. Knubel, hinum þjóðkunna forseta UnitecL Lutheran
Church in America, að prédika fyrir þetta aðal útvarpsfélag í
Ameriku kl. 4-5, e. h. (Eastern Standard Daylight Saving), á
hverjum sunnudegi frá 16. ágúst til ix. október. Hefir dr. Knubel
þegið boðið.—
Á siðari árum hefir dr. S. Parks Cadman, nafntogaður kenni-
maður, gert þessa guðsþjónustustund víðfræga meðal Vestur-
heimsmanna.
The National Broadcasting Company er í sambandi við 40-50
radió-stöðvar í öllum stórborgum álfunnar frá^hafi til hafs. Auk
þess ná sambönd þess til skipa og raunar til radió-stöðva um heim
allan.