Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1932, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.03.1932, Qupperneq 12
74 þeirra einn. Hundurinn, sem ofan á verSur í áflogunum og nær beininu, ber það í munninum á afvikinn stað og klórar mold yfir það, svo það geymist þar til hann vitjar þess aftur. Dýrunum er það vorkunn, þótt þau rífi hvort af öðru og éti hvort annað. Þau hafa ekki gáfurnar okkar til að stofna félög og stýra þemi almenningi sínum til heilla, eins og við þjóðfélögum okkar. En hversu miklu lengra erum við mennirnir komnir, að öðru leyti en því, hvað við kunnum að “fara betur með þaS ?” Síngirni dýranna kemur fram í mönnunum með mörgum hætti. Alveg eins og dýrin, hafa flestir menn ákafa eðlishvöt til þess að sölsa undir sjálfa sig sem mestu þeir orka og njóta þess einir. Það er samkeppnin. Sumir verða hlutskarpari en aðrir og fáir hlutskarpastir allra. Þeir, sem í flest beinin ná, eru líklega ekki hótinu grimmari, en hinir, sem af beinunum missa. Þeir, sem aldrei komast yfir nema lítið, eru oft engu síður ágjarnir, en hinir, sem í meira ná. Það liggur í augum uppi, að ef hér á eitthvað að breyta til, þá verður það ekki gert með lögum, heldur með breyt- ingu eðlishvatanna sjálfra. Ekki eru gæðin, sem flogist er á um, fjármunir einir saman, eður auðlegð. Mannvirðinga-hnossin eru bitbein engu minni. Flest- um mönnum kippir meira eður minna í kyn páfugla. Smátt má það mannfélag vera, ef ekki bólar þar á mannjöfnuði og öfund undir niðri. Vaxi einhver að virðingu, verður hann fyrir illgirni annara. Af þeirri rót er runninn ójöfnuður mestur í mannfélaginu. Þaðan stafa einvígin í félagslífinu, flokksfylgið og flokkshatrið. Það eru áflogin um efstu sætin, hvort sem menn gera sér grein fyr- ir því, eður ekki, sem valda að miklu leyti óláni okkar i allri sambúð og félagslífi, bæði í smáum félögum og stórum, bæði í ríki og kirkju. Ekki heldur breytist það nema með breyttum hvötum sál- arlífsins. Þá er dýrslund mannsins ekki sízt augljós í því, hve óstöðv- andi ástríðu menn hafa til þess, að drotna h'verir yfir öðrum. Úti á dýramörkinni er ekki um að tala. Þar bítast dýrin unz eitt lætur undan öðru. Eins er með tömdu dýrin. Þegar ókunnugir hanar hittast, byrja þeir æfinlega á því að berjast, og halda áfram þangað til annarhvor lætur undan og flýr. Fyrir hönunum virðist ekki vaka annað en það, að höndla þá ánægju, að vita sjálfan sig hinum hananum meiri. Svipað er það í mannfélaginu. Þeir -börð- ust, kapparnir, förðum, með sverðum sínum, oftast til þess eins að “reyna með sér.” Það höfum vér löngum kallað “frægð” og “hreysti.” Enn eru menn.að þessu, þó önnur noti þeir stundum

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.