Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 15

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 15
77 tíðkaðist á því æðra tilverustigi, sem hann nefndi Guðsríki. En líða hafa þurft allar þessar nitján aldir, áður en mennirnir áttuðu sig á því, að samkepnishyggjan, sem ríkt hefir alt frá fortíð mannsins í dýraríkinu fram á þenna dag, er nú komin í mát. Verð- ur hugnæmt að vita, að hverju mennirnir snúa sér nú. Nokkur merki má þess sjá, að marga fýsi nú að fara að sækja samlyndis kirkju bræðranna, hætta að girða umhverfis akurbletti sína, og jafnvel bera korn af sinum akri inn á akur bróður síns. Víst er það, að hvar sem vitrir menn nú ræða eður rita um mannfélagsmálin, er sömu úrlausn hampað. Þeim kemur öllum saman um það í orði kveðnu, að nú veröi að breyta til, nú verði þjóðirnar að hætta sinni svakalegu samkepni, ekki aðeins láta af vígbúnaði og bardögum, með þeim tilkostnaði, sem alþýðan ekki fær lengur risið undir, heldur líka láta af viðskifta-ofbeldi öllu og fara að vinna saman. Eining mannkynsins, í stað sundrungar, verður að viðurkenna, samvinnu í stað samkepni. Engum er það að líkindum ljósara en sjálfum stórgróðamönn- unum (capitalistunum), að dagar þeirra eru bráðum taldir. Fé- sýslumaður voldugur á Wall St. í Nevv York reit fyrir skemstu sóknarpresti sínum sendibréf. Hafði kennimaður sá undanfarna sunnudaga talað af spámannlegri andagift um ástand heims og skorað á ahnenning að aðhyllast samvinnu-stefnu Krists. Bréf auðmannsins var vingjarnlegt og fylgdi því álitleg fjárhæð sem ársgjald til safnaöarins. En að öðru leyti fórust fésýslumannin- um orð á þessa leið: “Eg mun ekki oftar sækja kirkju til yðar. Ársgjald mitt mun eg greiða framvegis, því eg er þess fullvís, að kenningar þær, er þér boðið, eru réttar og verða ofan á um síðir. En eg get alls ekki breytt eftir lífsreglum þeim og þó haldið áfram sýslu minni. Eg hefi því ráðið við mig, að hlífa sjálfum mér við þeim ófriði, sem bættist viö hugarstríð það, er eg á nú í, ef eg ætti að sækja kirkju yðar á sunnudögum.” Hér var einlægur maður. Hann kannaðist við það hreinskilnislega. að hann ekki geti talið sig kristinn mann, jafnframt því að fylgja samkepnisstefnu samtíðarinnar í fjármálum. All-víða, hvað sem úr því verður, virðist um þessar mundir samúðar- og samvinnu-stefna ryöja sér til rúms bæði nær og f jær. Mjög augljóst er, að almenningur vill frið. Þeir, sem brjóta vilja upp á nýmælum, sem sundrung hafa í för með sér, fá litla áheyrn og litla þökk alþýðu. Fólk krefst þess, að jafnvel prestarnir hætti að fjargviðrast út af sérkreddum sínum, en gangi heldur á hólm við mannfélagsbölið ógurlega í nafni herra síns. Nýjar hólm- göngustefnur milli “fundamentalista” og “modernista” vekja enga

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.