Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1932, Qupperneq 31

Sameiningin - 01.03.1932, Qupperneq 31
93 skógarins. Eg mun ætí'Ö bera þá tilfinningu í brjósti eftir þessa nótt, og allar þær undrasögur, sem sagÖar eru úr skóginum, gætu vel átt sér stað; og til séu illir andar, sem undir vissum kringum- stæÖum eiga sér náttstaÖ í skuggaríki skógarins. Nú sáust turnar Erfurt-borgar á.sléttunni framundan. Var þaÖ mér feginssjón. Eg átti aÖeins einn vin viÖ háskólann í Erfurt. Það var Marteinn Lúter. Hann er mér á viÖ marga vini. Hann hefir nú þegar, fengið mikið orð á sig meðal stúdentanna. Kennararnir gera sér um hann miklar vonir. Lúter leggur fyrir sig laganám, því faðir hans vill aÖ hann taki sér lögmanns störf fyrir hendur. Það er líka það, sem eg hefi valið mér. Allar ráðleggingar Lúters eru mér afar dýrmætar. Mikil breyting er komin á Lúter. Úrsúla frænka miskunnaði sig yfir hann, þegar hann var umkomulaus skóladrengur, og aflaði sér brauðs meÖ því að syngja fyrir dyrum manna á götu Georgs helga. Faðir Lúters átti við ramman reip að draga að koma upp fjölskvldu sinni, en honum hefir samt tekist þaÖ. Hann hefir nú eignast steypusmiðju og hitavélar henni tilheyrandi, og kostar nú nám Marteins við háskólann. Hinn ískaldi æfimorgun Marteins er ljðinn með öllum erfið- leikum. Framtíðin sýnist nú björt. Erfurt, April 1503. Við erum rétt komnir heiin úr ferð. Reyndist það hættu- ferð fyrir Lúter. Fyrir þrem dögum siðan lögðum við upp gang- andi. Það var snemma morguns. Marteinn ætlaði að heimsækja fólk sitt í Mansfeld. Hjörtu okkar voru full af framtíðarvonum, og skógurinn þrunginn söng og ljóðum. Við vorum með sverð við hlið; malpokarnir voru fullir af vistum, og við vorum hressir í huga eins og bláloftið. Leiðin lág um mörk og engi; og eftir bökkum FEólm-fljótsins; síðan eftir Gullengi. Á því svæði eru mörg reisuleg klaustur og keisara- hallir. Eftir stundar ferS kom það óhapp fyrir, að sverð Lúters rakst i fót hans. Það hafði snert blóðæð og fossaði blóðið úr. Eg hljóp til baka til Erfurt og skildi Lúter eftir hjá mönnum, sem bjuggu þar í nánd. Þegar læknirinn kom, reyndist afar erfitt að stilla blóðrásina með vafningum. Óskaði eg þess þá, að Elsa eða mamma væru komnar, með hinar lipru fingur sínar. Okkur tókst að bera Lúter á milli okkar til Erfurt. Eg vakti vfir honum. Nær miðnætti tók að blæðá á ný. Útlitið var alvarlegt. Marteinn bjóst

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.