Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1933, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.05.1933, Blaðsíða 3
áÉ>ametmngtn Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga gefið út af Hinu ev. lút. kirkjuféla'gi Isl. í Vesturheimi. Ritstjórar: Kristinn K. Olafson, Guttormur Guttormsson, Féhirðir: Mrs. B. S. Benson. XLVIII WINNIPEG, MAÍ, 1933 Nr. 5 Sára Jónas A- Sigurðsson, Íátinn Vinur vor og meðritstjóri dó sviplega af heitablóðfalli miðvikudaginn (5. maí á ferð í Winnipeg. Hann hafði oft heðið: Hafðu Jesú mig í minni, mæðu og dauðans hrelling stytt. Sú bæn var heyrð. Starfi sínu hafði hann sint með venjulegum ötulleik og dugnaði fram að síðustu stundu. Fyrirvaralaust hné hann máttvana í vinahópi. Honum var hlíft við langri og þreytandi hið í örkumslum. En fyrir mildiríka náð Guðs t’ekk hann að n jóta rænu og máls um nokkra hríð eftir aðvörun aðsvifsins. Hann þekti kall dauðans—kall Drottins. Það kom hon- um ekki óvænt. Hann fekk að ítreka í síðasta sinni við ástvini sína það, sem honum mest lá á hjarta. Hann fekk með fullri meðvitund að fela sig Guði, er kallaði hann heim. Svo sveif á hann höfgi. Meðvitundarleysið varð eins og líknandi blæja yfir umskiftum dauðans.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.