Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1933, Side 21

Sameiningin - 01.05.1933, Side 21
kenni grundvallarlög vor og kenn- ingargrundvöll þsirra. (b) Aö það beiðist inntöku án nokkurrar breytingar á kenningar- grundvelli sinna eigin grundvallar- laga. Þessari beiðni vœri látin fylgja umsögn íslenzka kirkjufélagsins á þá leið að eins og í öðrum skandinav- iskum heildum tíðkist það ekki með- al lúterskra Islendinga að tilgreina önnur játningarrit lútersku kirkj- unnar en Ágsborgartrúarjátninguna og Frœði, Lúters hin minni. (c) Að það beiðist inntöku með þeim skilningi að viðurkenning þess á vissum lútersk-um játningarritum í grundvallarlögum sínum, merki ekki á nokkurn hátt að öðrum játn- ingarritum, sem nefnd eru í grund- vallarlögum U.L-C.A. sé hafnað. Á grundvelli einhverra slíkra um- mcela eins og eg hefi bent til að ofan er eg fyllilega sannfærður um að ekki nokkur rödd kœmi fram innan U.L.C.A. gegn því að veita íslenzka kirkjufélaginu viðtöku. Sumar þessar spurningar voru sendar forseta kirkjufélagsins af öörum innan kirkjufélags vors og sumar þeirra eru írá honum sjálf- um. Taldi hann heppilegt aÖ fá svar frá dr. Knubel þeim viðvíkjandi. Lætur hann þær nú birtar almenn- ingi til umhugsunar. Seattle, Wash. 4. maí, 1933. K. K. Ólafson. Árslokahátíð Jóns Bjarnasonar Skóia Hún var haldin í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg að kvöldi þriðjudagsins 23. maí. Stór hópur í'ólks kom þar sam- an. JNemendahópurinn var nú stær-ri en nokkru sinni áður. Séra H. L. Urness, prestur norsk-lúterska safnaðarins í Winni- peg, stýrði guðræknisstund í upphafi samkomunnar. Söng- flokkarnir sungu og fimm nemendanna fluttu ræður. Sagðist þeim sérstaklega vel. Nöfn fimm nemenda voru skrásett á Arinbjarnar-bikarinn og stýrði Miss Halldórsson þeirri at- höfn. Dr. W. T. Allison, prófessor í enskum hókmentum við háskóla Manitoha-fylkis, var aðalræðumaður. Talaði hann aðallega um bækur og lestur. Eins nefndarmanna saknaði maður við það tækifæri, séra Jónasar Sigurðssonar. Frá dauðsfalli hans er sagt í þessu blaði. Engan ótrauðari fvlgis- mann átti skólinn en séra Jónas. Hann talaði af guðmóði er minst var á að láta hann falla niður. Vörn hans í því máli á siðasta kirkjuþingi verðskuldar að hún sé lengi í minnum höfð. F. M.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.