Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1933, Side 11

Sameiningin - 01.05.1933, Side 11
85 vera leit á nútímamanni íslenzkum, sem svona rækilega hafi svipað til Jóns Arasonar.— Nei, séra Jónas er ekki horfinn; þetta eru sumar mvnd- irnar af honum, sem við sjáum, þegar við lítum til baka. En hvað sjáum við þá fram undan? Það, er komið undir þeim bjarma trúar og vonar, sem við eigum í hjartanu. Ef við höfum enga trú, þá sjáum við ekkert fram undan, nema myrkur. En ef trúin lýsir okkur, hin kristna, sem séra Jónas átti sjálfur, þá blasir við okkur dýrðleg sjón: “Eftir þetta sá eg og sjá: Mikill múgur, sem enginn fekk tölu á komið—þeir stóðn frammi fyrir hásætinu og frammi fgrir lambinu, skrýddir hvítum skikkjum.”—Trúin getur eygt hann, sem við nú kveðjum, í þeim fríða hópi. Og hún getur tileinkað hon- um orð úr sama ljóðinu, sem vitnað var til í upphafi þessa máls:—• Fast eg trúi; frá oss leið vinur minn til vænna funda og vcrka frægra, sæll að skunda fullkomnunar fram á leið. G. G. Einn hinn vitrasti og' bezti maður fornaldarinnar, Sókra- tes, sem dó 400 árum f. Kr., var ákærður af illum og öfund- sjúkum mönnum fyrir að forsmá guðina og spilla æskulýðn- um. Hin sanna sök var dirfska hans í kenningum og hve oft hann varð illræðum vondra manna að fótakefli.—Hinn frægi lærisveinn hans, Plató, er lýsir dauða hans, segir meðal annars: Er Sókrates hafði lengi rætt við oss um ódauðleik sálarinnar, ætlaði hann að taka sér laug fyrir andlátið. Þá spurði Kríton vinur hans: Hvað eigum vér að gera fyrir börn þín, eða annað, sem þér er kært?—-“Þetta, sem eg er alt af að brýna lyrir yður, bezti Kríton,” svaraði Sókrates, “að þér berið rétta umhyggju fyrir sjálfum yður, þá munið þér vinna þægt verk mér og mínum, sem sjálfum yður, enda þó þér engu lofið. En ef þér vanrækið lífsskoðun yðar og lífs- feril, mun koma fyrir lítið þó þér heitið öllu fögru.”— Iívaddi hann þá með rósemi konu sína og þrjá unga sonu, lærisveina sína og þá, sem byrluðu og báru honum hana-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.