Sameiningin - 01.02.1924, Side 20
50
Þit segir, aS það sé sjálfsagöur þáttur í mentun hvers manns,
að sjá góða leiki. Látum slika mentun eiga sig! Þaö er synd-
samlegt fvrir kristna rnenn aö styrkja aörar eins stofnanir, sem
leikhúsin eru nú á dögum.
Velmiétinn safnaöarfulltrúi ltér í Vesturlandinu, sem var
vanur aö kalla mig þröngsýnan og ofstækisfullan í skoöunum
mínum á leikhúsum, átti son, sem kvæntist eins og lög gera
ráö fyrir. Litlu síöar gengur kvenmaður upp aö piltinum,
sendir blýkúlu gegnum hjarta hans og drepur hann. Hún gjöröi
tilkall til hans; þau höfðu kynst í leikhúsi. Faöirinn lagðist í
gröf sína lamaöur og sorgmæddur fyrir nokkrum árum; yndi
lífsins var horfiö.
Eg vil heldur vera þröngsýnn og vita rétt, heldur en víö-
sýnn og hvggja rangt. Eg vil ekki leiða syni mína þangað, sem
þeir veröa fyrir freistingum. Nú á dögum eru menn fúsir til
aö vera kristnir, ef þaö kostar ekkert, enga sjálfsafneitun. En
eg vildi ekki gefa skóþveng fyrir þann kristinn mann, sem elt-
ir allar skemtanir og rengir si'nn eigin vitnisburö. Þaö, sem viö
þurfum í dag, er aö skilja viö heiminn. Þaö er auðvelt aö biðja
Guð um fylling andans, en ef hann heyrir bæn þína, þá þarft
þú að vera aöskilinn frá heiminum. Viljir þú láta einhvern
fyllast rafmagni, þá þarft þú aö setja hann á stól meö glerfót-
um og einangra hann algjörlega frá jöröinni. Og viljir þú
fyllast krafti himinsins, þá veröur þú aö' segja skilið við heim-
inn.—
Hafið þiö nokkurn tíma heyrt þess getiö, aö menn hafi
byrjað leikhúsförina með' bænafundi? R'eyniö það, og sjáiö hvað
ykkur tekst. Biöjið þess, aö leikarnir hafi sterk áhrif á ykkur,
og veiti ykkur uppbygging og alls konar blessun. Það er ekki
hægt, Oröin kafna í ikverkunum.
F.n bii segir: “Eg þekki marga góöa menn, sem fara.” Svo
gjöri e’g, en eg þekki líka marga góða menn, sem uppskera laun-
in í börnum sínum. Eg hefi orðið að hlusta á sögur, hundruð-
um saman, um eymd og ógæfu, sem fjölskyldur þessar urðu
fyrir af völdum leikhúsanna. Það1 er ofur-hægt, að leiða börnin
þín inn í Sódómu, en afar-hart, aö ná 'þeim þaöan út. Þaö er
auðvelt fyrir föður eða móöur aö leiða börnin í freistni, en aö
leiða þau úr freistingunni, þaö er annaöi mál.
Viljir þú öölast kraft, þá þarft þú að vera aðskilinn frá
heiminum. En þú segir: “Eg tapa áhrifum.” Sjálfsagt.
En láttu þá áhrifin fara. Þess lconar áhrif getur þú ekki öðl-
ast, og átt kraftinn líka. Þekkir þú muninn á krafti og á-
hrifum? Eg skal sýna þér hann. Akab 'hafði áhrif; Elía hafði