Sameiningin - 01.02.1924, Síða 21
51
Kraft. Eg hefi aldrei þekt þá menn kristna, sem höföu mætur
á spilum og 'leikhúsum og veðreiöum, og leiddu þó aöra menn
til Jesú Krists.
Þeir tala um þessi gríðar-miklu áhrif sín. Eg efast ekki
um þaS, aS ef þiö heföuð komiö til Sódómu fáum dögum áöur
en hún fórst, þá hefSf ykkur verið sagt, að Lot væri mestur á-
hrifamaður þar. Þið1 munduð hafa séð hann sitja i borgarhlið-
inu. Hann hafði sjálfsagt komist í embættí, verið kjörinn
dómari, ef til vill, eða borgarstjóri í Sódómu. ffann átti víst
sumar dýrustu horn-lóðirnar. Frú Lot var í góðum kunnings-
skap við fínasta fólkið í borginni. Sódómubúar mundu hafa
sagt ykkur, að Lot væri hygnari miklu, og meiri gróðamaður,
heldur en Abraham föðurbróðir hans, og ef hann lifði tuttugu
ár til, þá yrði hann ríkari þeirra tveggja. Málsmetandi maður í
mieira lagi! En mér er spurn: var það mikill kraftur, sem
hann hafði ? Eg get ímyndað mér, að þegar Abraham var að
biðja fyrir Sódómu, þá hafi' hann hugsað sem svo:
‘‘Lot hefir mikil áhrif í Sódómu. Eg heyrði fólkið láta
mikið af honum, þegar eg var þar um daginn. Hann er búinn
að vera þar í tuttugu ár, og sjálfsagt er það meira en hálfur
svndari á ári, sem hann hefir snúið til Guðs. Það hljóta að
vera tíu menn réttlátir í Sódómu."
En Sódóma var eydd. Lot hafði aldrei snúið þar nokkrum
syndara; >en eigin fjölskyldu sinni var hann búinn a<5 gjör-
spilla.
Sækist eftir veraldlegum áhrifum, ef þið viljið, en þau
deyja með ykkur. Hvar eru áhrif Akabs í dag? Hvar eru á-
hrif Nebúkadnesars og allra hinna, í samanburði við áhrif
Elía og Daníels? Daníel fór úr heimi þessum fyrir tuttugu og
fimm hundruð árum, en nafnið hans skin enn á himni sögunn-
ar, og mun skína þar að eilifu. Hlann sigraði freistingarnar.
Hefði hann ekki gjört það, þá hefði þær steypt honum niður í
díkið, eins og hinum. Hann hef ði' getað sagt sem svo:
"Eg glata stöðu minn og virðingu, nema eg drekki sama
vín og eti sama mat, eins og konungurinn. Eg glata öllum á-
hrifum.’’
Verið getur, að hann hafi glatað áhrifum; en, Guði sé lof,
hann öðlaðist kraft. Getið þið sagt mér, hverjir voru miljóna-
mæringarnir í Babýlon? Eða hershöfðingjarnir ? Nöfnin hafa
rotnaö með líkum þeirra; en Daniel lifír áfram. Af hverju?
Af þvi a® hann valdi það, sem rétt var, og sigraði freisting-
arnar.
Önnur stór-freisting er fólgin í vanrækslu hvildardagsins