Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1924, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.02.1924, Blaðsíða 23
53 ar, sjö dálkar. (Ágætt aflestrar á sunnudegi!). Þjófnaöur og rán, tuttugu og fjórir dálkar. íþrótta-fregnir, áttatíu og einn dálkur ("gott andans fóöur á sunnudegi \). Sniávegis um leikhúsin, fjörutíu og fjórir dálk- ar. fGetum ekki án þess verið á sunnudegi, auðvitaö!). Lausa- hjal um daginn og veginn, og tízkuna, sjötíu og sjö dálkar. ('Sálin verður víst feit á því fóðri?). Æsingamál, fjörutíu og tveir dálkar. ('Fólk hefir ýmugust á “æsandi” stólræðum, en fjörutíu og tveir dálkar af æsingar- cfnum í blöðunum — það‘ er annað mál!). Skáldsögur, níutíu og níu dálkar. Slúöursögur, óhreinar og persónulegar, átta dálk- ar. (Hugsið ykkur kristinn mann, sem lætur annað eins blað liggja fyrir börnunum sínum!) Útlendar fréttir, fjörutíu og sjö dálkar. Pólitiskar fréttir, hundrað og þrettán dálkar. Ýmiskonar fréttir, níutíu og tveir dálkar. Ritstjórnar-greinir, þrjátíu og níu dálkar. Ritgjöröir um valin efni, hundrað níutíu og níu dálkar. Um listir og bók- Tnentir, tuttugu og fjórir dálkar. Trúmál, þrír dálkar og einn- fjórðí. (Ágætar ræður í sunnudagsblöðum!). Níu hundruð og ellefu dálkar rúmir, og þar af þrír og einn fjórði um trúmál. Það er nú helgidaga-lesturinn. Sjálfur Gabríel gæti ekki náð valdi yfir áheyrendum með höfuðin full af slíku fóðri! Eg segi ykkur, að við þurfum trúvakningu, sem sópi þessum snunudagsblöðum burt úr landinu. Sú var tíðin, að kaupmaðurinn lokað'i búð sinni á laugar- dagskvöldi, og tók sér hvild á sunnudeginum. Hann notaði daginn til bænar og tilbeiðslu, til að endurnæra sál sína. Nú á dögum lokar hann að vísu búðinni, en hann setur glymjandi auglýsingu í sunnudagsblaðið, og rakar að sér meiri verzlun, heldur en á nokkrum öðrum degi vikunnar: “Mánudags- kjörkaup“. Hann tekur auðvitað sunnudagsblaðið og les, til að sjá, hvort rétt sé farið með auglýsinguna; og börn- in hans bíða eftir tækfæri til að lesa um kappleikana, eða þá slúðursafn vikunnar. Og svo eru menn stein-hissa á því, að börnin þeirra skuli leiðast afvega. Það er einmitt furða, hve mörg þau eru, sem ekki spillast. Góðir menn, hvað hafið þið gjört við samvizkuna? Eg vona, að hún slái ykkur næst, þegar þið bjóðist til að styrkja sunnudagsblað'. Já, maðurinn anar beint í freistinguna, og svo fuúðar hann sig á þvi, að' hann var freistaður. Heimurinn þarfnast menn, sem þora að lita framan i þessi mál, og standa við það, sem rétt er, þó þeir hafi alt mannkynið upp á móti sér.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.