Sameiningin - 01.02.1924, Side 26
56
frægan á söguöldinni. Útför Guörúnar Sigmar fór fram þann 13.
þ.m., og voru þar sóknarprestinum, séra Friörik Hallgrímssyni, til
aöstoðar þeir séra N. Steingr. Thorláksson frá Selkirk og séra
Björn B. Jónsson frá Winnipeg.
Þorbjörg María Einarsdóttir,
ekkja séra Jón-s sál. Jónssonar, Lundar, Man., lézt að heimili sínu
21. janúar siöastl. eftir þunga Legtt.
Þorbjörg sál. var fædd á Arnheiðarstööum í Fljóstdal 1861.
Foreldrar hennar vont Einar Guttormsson og Sigríöur iÞorsteins-
dóttir, serrt þar bjuggu. Hún var tekin tiþ fósturs af afa sínum og-
ömmtu, Þorsteini hreppstjóra Jónssyni og Þorbjörgu Pétursdóttur t
Brekkugerði í Fljótsdal, og óls't hún upp hjá þeim til 14 ára aldurs,
er þau brugðu búi. Eftir þaö dvaldi hún hjá foreldum sínum, þar
til 1886, að hún igiftist séra Jóni Jónssyni, semt það ár vígðist að
Kvíabekk í Eyjafjarðarsýslu. Þ'au fluttust um aldamótin vestur um
haf og dvöldu lengst af við ‘Lundar, Man. Maður hennar dó fyrir
tæpum tveimur árumv og síðan fór heilsu hennar hnignandi, einkum
síðastliðið ár. Um mitt sumar var hún orðin blind og lá eftir það
rúmföst, oftast þungt haldin, uns hún andaðist. Hún hafði unnað
mjög manni sinum og verið honum tryggur förunautur í blíðu og
stríðu. og nú eru þau aftur sameinuð hjá honum, sem þau treystu í
lífi og dauða.^
Þorbjörg Einarsdóttir var fríðleikskona, lundþýð og skyldurækin.
Hún lét ekki mikið á sér bera, en hún var trú í starfi sínu utan
heimilis sem innan, og allir, sem þektu hana, minnast hennar með
velvild.
Hún var jarðsett við hlið manns síns í kirkjugarði Lundar-
safnaðar 25. janúar.
Adam horgrímsson.. .
FYRIR UNGA FÓLKIÐ.
Deild þessa annast scra Friðrik 'Hallgrímsson. i
•l——"—■———■——— --------------—..—.—.—-—4,
Ungmennafundurinn.
Ungmennafundurinn, sem til haföi verið boðað af nefnd þeirri,
er til þess var kosin á síðasta kirkjuþingi, var settur í kirkju Fyrsta
lúterska safnaðar í Winnipeg, miðvikudaginn 20. janúar, .1924, kl. 2
e. h. (
Fundinum stýrði séra Friðrik Hallgrímsson, er til þess hafðL
verið fenginn af nefndinni, í fjarveru forseta nefndarinnar, séra H.
Sigmars.