Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1925, Side 10

Sameiningin - 01.07.1925, Side 10
200 fræði, sem slíka skóla á sem Yale og Harvard, Cornell og Col- umbia, Princeton og John Hopkins, og ótal aSra í fremstu röö. nn þaS er nú svona í Bandaríkjum, aS þjóSin er svo frjáls lynd, aS hún leyfir hverju sérstöku ríki aS ráSa sér sjálft að mestu leyti. VerSi því einhverju ríkinu eitthvaS á í sérmálum sínum, þá ber þaS eitt ábyrgS á því. Nú var þaS á síðasta þingi hornstrendinganna suSur þar í Tennessee, aS þeir tóku sig til og sömdu lög um þaS, aS í skólum ríkisins mætti ekki kenna það sem vísindaleg fræði, sem kallaS er breytiþróun, eSa evolution. Er þaS sú hin vísindalega tilgáta—um uppruna mannkynsins,— sem flestir vísindamenn nú taka mest tillit til, þó enginn telji fullsannaSa. í flestum skólum er eitthvaS kent í þeim fræSum. FormaSur eins kirkjuskólans lú-terska í Bandaríkjum var ný- lega aS því spurSur, hver aSstaða þeirra þar i skólanum væri viS .framþróunar-kennlinguna þevolutionj. Skóíastjóriinn þlúbersk- ur prestur í norsku kirkjunni) svaraði: “Vér viSurkennum hana sem sennilega tilgátu” þwe accept it as a working hypothesis.) En þingmennirnir í Tennessee litu á máliS nokkuS á annan veg. Þeir töldu kenningu þessa mótsögn viS sköpunarsögu ritnirigarinnar og lögSu viS sekt og fangelsi, ef nokkur maSur hreyfSi þeirri kenningu í skólum þeim, er kostaSir væru af ríkis- íé. Ungur maSur, John Scopes aS nafni, kennari i einum miS- skóla ríkisins, neitaSi þegar aS hlýSa lögum þessum og fór ekki dult meS þaS. Var þá sakamál höfSaS gegn honum, og fór þá alt í bál og brand. Safnaðist þá til Dayton, þar sem rannsaka átti málið, heill skari lögvitringa til þess aS sækja máliS og verja. Voru trúarbrögSin dregin inn i máliS ófyrirsynju og úr því varS trúarbragða-stríS, — eitthvert hiS ömurlegasta, sem sögur fara af. William Jennings Bryan stýrSi málsókninni, en til varnar var beitt fyrir Clarence Darrow, glæpamála-lögfræðingnum al- kunna, sem sjálfur telur sig trúlausan mann, segist hvorki trúa á GuS né annaS líf. Fyrir réttinum meSgekk Mr. Scopes, aS hann hefSi brotiS lögin,, og var hann fundinn sekur og dæmdur í 500 dollara sekt. Varð þetta aS samkomulagi með lögfræSingum beggja megin og var komiS sér saman um aS áfrýja málinu beint til hæstaréttar Bandaríkja, aS hann skeri úr því, hvort lögin sjálf sé réttmæt, eSa hvort þau komi í ibág viS stjórnarskrá ríkjasambandsins. Eengra er máliS ekki komið. ÞaS hefir vakið afar-mikla eftir- tekt og er meira um þaS rætt í blöSum og tímaritum, en nokkuS annaS, sem komiS hefir fyrir í mörg ár. —B.B. J.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.