Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1925, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.07.1925, Qupperneq 20
210 aS hi'xn ráði yfir þvi máli. VelferS sérhvers ríkis hvílir algjörlega á grundvelli góSra borgara. Ekkert getur leyst ríkiS frá þeirri skyldu, aS þroska unglingana, svo þeir geti orSiS sem beztir boxg- arar. MeS þessu er 4 engan hátt sagt þaS, aS hún geti, í bessu efni. leyst alla skyldu sína af hendi innan kirkjuveggjanna. Hinn miklx fjöldi mentastofnana í þessari heimsálfu, sem mótmælenda-kirkjan algjörlega annast, er ómótmælanleg sönnun þess, aS hún kannast viS þaS sem heilaga skyldu, aS eiga einhvern þátt í hinni æSri ment- un. Þær stofnanir, ekki aS eins prestaskólar, heldur einnig skólar, og þeir afar margir, sem veita almenna mentun. Um þetta atriSi má segja, aS nærri öll kristin kirkja í Bandaríkjunum og Canada sé sannfærS. Þegar menn því nefna þaS flónsku fyrir lúterskt kirkju- félag og Vestur-lslendinga, aS vera aS viShalda kristilegum menta- slcóla, verSur ekki annaS sagt, en aS flónin, sem eru á sama bekk eins og þaS, séu nærri óteljandi. Ef vestur-íslenzkir foreldrar eru sjálfum sér. trúir, veita þeir börnunum sínum þaS bezta, sem þeir eiga, en þaS er lúterskur kristindómur og íslenzkt þjóSerni. Hvorugt af þessu geta þau fengiS í alþýSuskólunum, en einmitt þessa þörf leitast Jóns Bjarna- sonar skóli viS aS uppfylla. Hann er eins og standmynd, sem sett er á staS, sem hefir veriS sérstaklega búinn til handa henni. Hann hefir verk aS vinna fyrir vestur-íslenzka foreldra, sem enginn ann- ar skóli vinnur. ÞaS er marklaust aS segja, aS nóg sé til af öSrum skólum. Enn sem komiS er, er Jóns Bjarnasonar skóli sá eini í heimsálfunni, sem vinnur þaS verk fyrir íslenzka foreldra, aS gróS- ursetja í hinum ungu sálum íslenzk frækorn og frækorn kristindóms samhliSa almennri mentun. Þá segir einhver: ÞaS getur veriS satt, aS Jóns Bjarnasonar skóli sé verulega þörf stofnun. Þetta getur alt veriS gott og bless- aS, ef viS gæturn þaS, en þetta er svo erfitt, þetta er grýtt fjallganga, þaS eru hættur á leiSinni, þaS er ókleift. ÞaS á vel viS aS minna á orS úr 5. Mós. og Rómverjabréfinu. “Því aS þetta boSorS, sem eg 1-egg fyrir þig í dag, er þér eigi um megn og þaS er eigi fjarlægt þér. Ekki er þaS uppi í himninum, svo þú þurfir aS segja: Hver ætli fari fyrir oss upp í himininn og sæki þaS handa oss og kunngjöri oss svo vér megnum aS breyta eftir því? Og eigi er þaS hinum megin hafsins, svo þú þurfir aS segja: Hver ætli fari fyrir oss yfir hafiS og sæki þaS handa oss og kunngjöri oss þaS, svo aS vér megum breyta eftir því? Heldur er þaS harla nærri þér, i munni þínum og hjarta þínu, svo þú getur breytt eftir því” (5. Mós. 30, 11—14J. “Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn, — þaS er, til aS flytja Krist ofan, — eSa, hver mun stíga niSur í und- irdjúpiS? — þaS er, til aS flytja Krist upp frá dauSum. HvaS segir þaS svo, nálægt þér er orSiS, í munni þínum og hjarta þinu. Þ-aS er orS trúarinnar”. ('Róm. 10, 7).

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.