Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 3
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga gejið út af hinu ev. lút. lcirkjufélagi ísl. % Vestrheimt XLI. Ai’g’. AVINXIPEG, FKBECAE, 1»2« Nr. 2 Er kirkjan að fara eða koma? Spurningunni veröur a8 svara á þá leiS, að kirkjan sé bæöi að fara og koma. Aö sumu leyti er hún aö fara; að öðru leyti er hún aö koma. Um þessar mundir er kirkjan um heim allan að fara úr gömlum fötum og ibúast nýjum klæðum. Með því er alls ekki átt við sjálft líf eöur anda kirkjunnar. Andinn er um eilífð óbreytanlegur. Grundvallar-sannindi trúarinnar breytast aldrei. Þau grundvallar-sannindi eru öll komin frá Jesú Kristi. Annaö en grundvallar-sannindi gaf Kristur e'kki kirkju sinni. Auka- atriöin, sem oft hafa orðið kirkjunni að fótakefli, eru komin frá mönnum. Þaú eru ávalt að breytast. Búningur kirkjunnar hefir breyzt á hverri öld, sem liðin er, — stundum meira, stund- um minna. Enn er hann að breytast. Andi kirkjunnar hefir þolað allar búnings-breytingar liöinna alda. Eftir hverja breyt- ingu hefir hann notiö sin betur. Enn er kirkjan að sauma sér ný klæöi að mörgu leyti. í þeim klæðum fær andinn óefað notið sín betur en nokkuru sinni áður og orðið mannkyninu til enn meiri blessunar. Orsök þess, að 'kirkjan nú er aö hafa fataskifti, er samkyns orsök og sú, er valdið hefir búnings-«breytingum hennar á öllum þeim öldum, sem liðnar eru. Kirkjunni er þaö eðli meöfætt og af Guði gefið, að sníöa klæði sín eftir högum og háttum samtíð- arinnar. Sumstaöar fæst hún ekki til að hlýða því lögmáli til- veru sinnar. — Þar er hún að fara. Víðast hvar gerir hún það fúslega. — Þar er hún að koma. Við getum, hugsaninni til hægðarauka, nefnt það tvær kirkj- ur Önnur er aö fara, hin að koma.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.