Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1926, Qupperneq 4

Sameiningin - 01.02.1926, Qupperneq 4
34 Fyrst er þá að ræða um kirkjuna, sem er aS fara. Kirkjan, sem er a£i fara, er kirkja, sem háS hefir veriS ein- strengingslegum sér'kreddum. Dagar þeirrar kirkju eru taldir, sem gerir auka-atriöi að aðal-atriðum trúarinnar. Það er sama, hvort þau auka-atriSi hafa talist til rétttrúnaðar eða afneitunar. Það stendur nú engin kirkja lengi, sem á tilveru sína undir á- herzlu á auka-atriSum, hvort seni það er ný eður gömul kirkja. -1 öðru lagi er kinkjan, sem er aS fara, kirkja, sem ekki gef- ur sig viS nauðsynjamálum mannfélagsins; kirkja, sem lætur sig engu varSa baráttu erfiðismanna fyrir daglegu brauði; kir'kja, sem ekki stranglega framfylgir kröfum siSferðilegs rétt- lætis í mannfélags-málum; kirkja, sem ekki reiSir öxina að rót- um hinna fúnu trjáa í félagslífi mannanna. Dagar þeirrar kirkju eru taldir, sem ekki áræðir aS tala á torgunum í nafni lifanda Guðs. Sú kirkja, sem ætlar sér að standa utan viS mannfélagið, fær ekki staðist; og því síður sú kirkja, sem geristi amibátt ein- ‘hverra sérflokka mannfélagsins, hvort heldur stóriðjuhölda eSur öreigalýSs, eSur einhvers annars sérstaks hluta ntannfélagsins, — rétt eins og enginn söfnuður fær þrifist, ef hann er háður sér- stökum flokk eður “klíku.” 1 þiðja lagi er sú kirkja á förum, sem vanrækir að klæða kenningu sína þeim fötum, sem samboðin eru og fullnægja vís- indalegri þekkingu samtíðar sinnar. Það gagnar ekkert að velja þekkingu samtíðarinnar ókvæðisorð. Það er ekki annað en vitn- isburður þess, að maður sé dagaður uppi sem nátttröll og skorti mentun. Kirkjan, sem er að fara, er hver sú kirkja, sem ekki er í sjálfri brjóstfylkingu þeirra hersveita, er sækja fram í lát- lausri leit að þekkingunni. Sú kirkja, sem felur sig fyrir ljósi þekkingarinnar og ekki er því vaxin, að krefjast heiðurssætis i háskólum, er kirkja, sem er á förum. Dúter óttaðist ekki þekk- inguna. Hann kaus' sér varnarþing í háskólum þjóðar sinnar. Hann boðaði trú sína á höfuðibólum visindanna. Sú kirkja er að fara , sem ekki hefir þrótt til þess að koma á mannamót í söl- um þekkingarinnar og halda þar velli. í fjórða lagi er sú kirkja á förum, sem ekki hefir lifandi boðskap að færa samtíð sinni. Sú kirkja er að fara, sem miðar allan boðskap sinn við Gyðinga, sem bjuggu langt austur í heinú fyrir 2—4 þúsund árum, en heyrir ekki hjartslátt sinnar eigm þjóðar. Sú kirkja, sem þekkir allar götur í Jerúsalem, en villist ef hún kemur í Reykjavík eða Wjnnipeg, er á förum. Sú kirkja,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.