Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 10
40 lega við kristilega fyrirgefning að henni á að vera samfara vak- andi siðferSismeðvitund, s'em ekki á neitt skilt við siöferðislegan afslátt, og vekur heldur ekki þá tilfinningu hjá þeim, er fyrir henni verða, ef hún er rétt metin. Hún gerir ekki óþarfa iðrun og yfirbót þess, sem brotið hefir, en ætti að vera sterkasta aflið til að vekja þann er fyrir henni verðut til að sjá að sér, og hún er það í reyndinoh H'ún uþprætir allan 'biturleik, alla óvild og hefndarhug úr hjarta mannsins, og er náskyld þvi að endur- gjalda ilt með góðu. Hún umvefur hinn brotlega bróðurhug, s'em vill koma honum til hjálpar, þrátt fyrir það, sem hann kann aS hafa gert á h'luta manns, og sá, sem fyrir þessu verður, þarf iað herða hjarta s!itt( ef hann ætlar að standa gegn slíkum áhrif- um. Vandlætið er óhugut á því illa, en fyrirgefningarhugurinn hefur vandlætið í hærra veldi, og beitir kærleikanum, sem sterk- asta vopninu i baráttunni gegn hinu illa. 1 guðspjöllunum er fyrirgefningarskylda mannanna tengd við fyrirgefningu Guðs'. “Ef þér fyrirgefið mönnunum mis'gerð- ir þeirra, þá mun yðar himneski faðir einnig fyrirgefa yður. En ef þér fyrirgefið ekki mönnunum þeirra misgerðir, mun faðir yðar ekki 'heldur fyrirgefa yðar misgerðir.” fMatt. 6. 14-15). Hlin sama hugsun kemur fram í drottinlegri bæn, og víðar„ Eað- irinn á himnum getur ekki fyrirgefið mönnunum nema þeir fyrir- gefi öðrum. Efast þó víst enginn kristinn maður um það, að hjá honum sé ætíð fyrirgefn'ingarhugur gagnvart mönnunum. Það eh eitthvað hjá mönnunum, sem er til hindrunar fyrirgefn- ingu 'Guðs. í þeirri merkingu getur hann verið hindraður frá því að fyrirgefa, að mennirnir geta hafnað fyrirgefningarhug hans. Það virðist auðsætt að i nýja testamentinu táknar það að fyrirgefa stundum að sýna fyrirgefningarhug, án tillits til þess 'hvort honum er hafnað eða hann er þeginn. f öðrum tilfellum vir'öist hvorttveggja vera innibundið i þv^ að fyrirgefa, að sýna fyrirgefningarhug og að fyrirgefningin sé þegin í iðrun. í fyrri merkingunni fyrirgefur Guð ætíð, og í þeirri merkingu eiga kristnár menn ætíð að fyrirgefa. í síðari merkingunni geta bæði Guð og menn verið hindraðir frá því að fyrirgefa. Undir það er vanalega talið að heyri syndin, s'em ekld verði fyrirgefin (Matt. 12, 22). Hún verði ekki fyrirgefin vegna þess, að sá, sem hana drýgi, sé orðinn svo forhertur í hinu illa, að hann geti ekki iðrast. Fyrirgefningarhugurinn er máttugur, en hin fulla bless- un fyrirgefningarinnar kemur ekki fram nema þar sem hún vek- ur iðrun og yfirbót. Rétt er það,að enginn hefir lifað fullkomlega eftir lögmáli

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.