Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1926, Page 15

Sameiningin - 01.02.1926, Page 15
45 móðir hans elskaði og tilbað. — Slikar voru hugsanir hans, meðan skipið leið hægt fyrir ljúfum byr, um róleg 'brjóst hins breiðfelda hafs. Sam»tímis því, að þessar hugsanir brutust um í sálu hins unga manns, þreytti harmþrungin rnóðir bænar andvörp við altarið í litla bænahúsinu. Hún bað Guð að leiða drenginn sinn, og sleppa aldrei hendi af honum, jafnvel þó.tt hann væri ekki fús að láta leiðast af Tilja Guðs.—• En þessi nótt var dimmasta nóttin, sem Monika hafði lifað. Henni fanst hún svo einmana, eftir viðskilnaðinn við dreng- inn sinn, — en hvílik undra gleði, að eiga Guð að ! Oft hafði hún fundið til þeirrar sæluríku vissu, sem 'bænin veitir, en þá nótt var sem hún sæi hvergi ljós, en hún hélt með höndum 'bænarinnar í klæðafakl Drottins síns, og reyndi að láta huggast' af fyrirheitum Guðs orðs. Nó'ttin hafði verið svefnlaus og dimm. Hún vissi ekki, að son- ur hennar var farinn á brott — út í heiminn. En mjög árla morg- uns hinn næsta dag, fékk hún fregnina, vissuna um burtför Ágúst- ínusar. Það sem hún hafði óttast mest af öllu, var komið fram. Og hann hafði skilið við hana me'ð lýgi á vörum sínurn! Hann hafði skilið við hana, án þess að kveðja hana. Hún gat naumast haldið kyrru fyrir eða stilt tilfinningum sínum í hóf. Hún gekk um ströndina og starði á hið breiða, blikandi haf. Hafði Guð gleynit henni ? Daufheyrðist hann við» bænurn hennar? Það var einungis ástin til Drottins, sem lýsti henni leið, og gaf henni styrk til að treysta honurn, og drekka bikar eldlegrar reynslu í botn. En Guð hafði hvorki gleymt henni né syni hennar. Hann gleymir a'ldrei ibænarandvörpum blæðandi hjartna. Hann var að láta þá atburði gerast, sem franr áttu að ganga. Ágústínus fann ekki gæfu eða gleði i Kartagóborg, né heldur í Rómu; heklur í Milan; en þangað datt honum víst sízt af öl'lu i hug að leggja leið sina. Hann haföi varpað öllum áhyggjum sínum fyrir borð. Iíann virti að vettugi Guð og trúarsamfélagið við hann. En hann átti eftir að læra það, að bænir móður hans voru heyrðar. Drottinn er máttugur að breyta stefnu manna og leiða þá til sín. Hann átti eftir að öðlast þekkingu á því, að hann, sem breytti P'áli, ofsóknaranu.m, í hinn dýrlega lærisvein, gat einnig breytt Ágústínusi fræðimanni og gert hann að Ágústínusi helga. En rnargar urðu sorgirnar, rnörg varð eldraunin, sem mætti honurn og móður hans á næstu áruni. Sjúkleiki mætti honurn og náði honum á sitt vald. Vonbrigði, er vinir og samverkantenn voru valdir að, voru afar-bitur. Friðleysi gagntók sálu hans, og veitti honum enga ró. Aldrei öðlaðist hann frið, unz Guð talaði hugljúf friðarorð til hans. — Til Mrlan lá leið hans; þar mætti móðir hans honurn, eftir langan viðskilnað. Og sorgarbikar hennar varð enn fyllri, sökum þess, að hún sá sinn kæra son berast með straum spillingarinnar. Hún stóð ráðþrota i framandi landi. Hún gat ekki skilið þau

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.