Sameiningin - 01.02.1926, Síða 16
46
örlög, —• að drengurinn hennar gengi lengi á spillingarvegi. En
orSlaus andvörp sálar hennar sögöu: “Veröi þinn viilji’ “Alt er i
þinni hendi, Drotitinn minn!” Hún haföi komið úr kæru ættlandi
sínu, í þeirri von, aS hún sæi hann snúast frá villu vega sinna. En
svo virtist, sem “vonir bæSi og ‘bænir hennar barning vildu fá”. Þær
voru enn ekki heyrSar.
En er stundir liðu, tók a5 morgna í sálu hins mikilhæfa manns.
Hvílík gleSi féll hinni öldruðu móöur í skaut, er hún var viöstödd
s'kírn sonar síns í dómkirkjunni í Milan. Hún sá hann varpa frá sér
oki efa og synda, verða frjálsan og öruggan í Drotni. Og nú gat
hún 'sungiö meö hinum aldraða Símeon: “Nú lætur þú, herra, þjón
þinn i friði fara.”
Hvað var það, þótt hún dæi á framandi strönd. fjarri elskaðri
ættjörð, meðal ókunnugra? Hún hafði öðlast þá gleði aö sjá son
sinn fara sigrihrósandi leiðar sinnar til sigurhæða í trú á Drottin,
starfandi í þjónustu heilagrar kirkju. —
Að sönnu auðnaðist henni ekki a'ð sjá son sinn berjast baráttu
trúarinnar fyrir hönd kirkjunnar; hún sá hann ekki halda hlífiskildi
yfir málefni frelsarans. Þeir atburðir urðu eftir að hún hafði
öðlast hví'ldina hinztu. En hún dó með þá sælu sannfæringu, að
Guð hefði heyrt grátþrungin andvörp elskandi móður. • Hún lifði
það að sannfærast um þýðingu bæna og tára: við vöggu hans. i
hinní kæru ættborg, þar sem æskuspor hans voru stigin, og að sið-
ustu í ókunnu fjarlægu landi. Guð hafði talið tárin og tekið and-
vörpin til greina.
(Ath.—Ágústinus sá, sem hér er nefndur fAurelius Augustinusj,
er Ágústínus kirkjufaðir, sá er frægastur er allra kirkjufeðranna fyrir
lærdóm og rétttrúnað. Hann' er fæddur í Tagaste i Afríku árið 354.
Eftir margra ára ráf í villu og siðleysi kom hann til Mílan. Var þar
í þann tíð heilagur Ambrósíus biskup. Eékk hann snúið hinum glæsilega
fræðimanni aftur til ibarnstrúar hans. er hann hafði fyrst numið af
móður sinni, Moniku helgu. Á 33. aldursári var hann skírður. Síðar
varð hann biskup í Hippó. Hann prédikaði af spámannlegri andagift.
Af fjölda rita, sem eftir hann liggur, eru “Játningar” hans merkastar.
Ágústinus andaðist 430.—Ritstj.)
Kraftaverka María.
fFramh.J
Undirforingi María Meakins fór af stað frá þorpinu Ossining
snemma á jóladagsmarguninn. Það hafði komið skel á snjóinn 4
veginum með fram Hudson ánni upp að hinni gráu borg örvænting-
arinnar, um nóttina, og er hún gekk rösklega áleiðis, marraði í
snjónum, svo það líktist viðkunnanlegu sönglagi.
Til hægri lá áin' fyrir neðan, Ibreiður upplitaður silfurborði, og