Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1926, Page 17

Sameiningin - 01.02.1926, Page 17
47 voru blettir á honum hér og þar af ísjökum. Austurloftið var ein breiSa af fönlandi. gullslit og daufum 'bláma, sem alt í einu varð skinandi bjart, þegar sólin gæg'Sist yfir sjóndeildarhringinn. ÞaS var þakklætissöngur í sálu Maríu Meakins, er hún hélt leiö- ar sinnar eftir einmanalegum veginum til elskhuga síns í varöhald- inu. Þaö lýsti af gráu augunum eins og af tvístirni, er hún leit til himins, og í andliti hennar var’ birta heilagleikans. Hún kom aö fangelsisdyrunum, þegar verið var aö sleppa föngunum úr klefun- um til morgunveröar. Hún vakti dottandi dyravörö, er slepti henni inn. Yfir-fangavöröurinn og aðstoðarmenn hans virtust vera snortnir af anda góðviljans, sem um heini allan einkennir fæöingar- hátíö Krists. Henni var bo'öið til morgunverðar hjá yfirmanni dýfl- isunnar, og þar 'sagöi hún frá hug sínum gagnvart fanganum númer 61,218. Meö brennandi áhuga sagöi hún verðinum frá sinni bjarg- föstu sannfæringu um sakleysi Jóa Gondon. Eftir morgunverö lét hann svo koma með Jóa inn í skrifstofu sína, og sagði stúlkunni með glaðlegu brosi, að hún mætti eiga hann allan daginn, .sem jólagjöf frá sér. A lest snetnma um morguninn kqm lítill hópur af hermönnum Maríu, körlum og konum. frá New York. Ásamt merki hersins koniu þeir með trumbu, bjöllubumbu og gítar. Unclir stjórn Mariu undirforingja gengu þeir hergöngu inn í fangelsis ferhyrninginn. Þar uröu þeir fyrir óvæntu. Lúðraflokkur fangelsisins beið þar eftir þeim. foringinn með taktstafinn uppreiddan. — Niður kom taktstafurinn og fjörutíu gráklæddir listamenn léku hinn hrífandi hersöng: “Áfram, kempur kristnar’’. Þetta kom hreyfingu á blóöið í æðum Maríuj undirforingja, og yfir andlit hennar brá róslitum roða. Þegar hermennirnir gengu inn í kirkjusalinn, þektu margir fangarnir litla undirforingjann. “Þetta er María. Þaö er enginn efi á því, kraftaverka María,” heyrðist hvíslað hér og þar. “Trúðu mér til þess,” kom frá manni, er í annað sinn var í fangelsinu, “hún verður farin að: tala um kraftaverk innan fárra mínútna. ’ Hún trúir’ á þau. Hiún er biluð, hvaö þaö snertir, og trúir, að þau geti orðið hvenær sem er.” Jói var í sjöunda himni af gleði við hliðina á henni. Rödd hans heyröist glögt í söngnum, og annað veifið hélt hann á lofti biblíu Maríu, svo fangarnir hinir mættu sjá, að trú hans væri ekki biluð. Hálf tvlft af nýjum hermönnum bættust undir merki krossins um Morguninri og önnur hálf tylft um eftirmiðdaginn. Eftir kveld- verðinn fluitti María bæn í iborð'salnum, og svo var haklið í salinn, þar sem sýningin átti að vera.. Maria og hermenn hennar, Jói og tólf nýju liðsmennirnir, fengu sæti 'Saman. Það byrjaði með upplífgandi og fjörugu inngangsspili. Og svo var dregið frá tjald á palli, er reistur hafði verið í öðrum enda salsins. Izzy var sá nefndur, er fyrstur sýndi list sína. Hann var tilkyntur sem hinn útfarnasti galdramaður, og með sínum liðugu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.