Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.02.1926, Blaðsíða 18
48 fingrum, sem margan vasann höföu heimsótt, áóur en hann komst undir hendur lögreglunnar, sýndi hann marg.t furöulegt meö spilum og peningum. I,águr vexti, en liöugur og mjúkur, skemti hann föng- unum vel me'ö kunnáttu sinni og töfrum. Hann geröi ýmsar sjón- hverfingar , hélt sex eggjum á lofti án þess aö brjóta nokkurt þeirra, en bar um leiö lampa með ljósi, á höföinu, og gerði svo margt anna'ö furöulegt, að: áhorfendunum var vel skemt. Næst var alvörublandinn skemtileikur, er fjórir fangar sýndu. Þaö góöa var; láti'ð sigra í leiknum, og bófinn var látinn deyja í krampaflogi. Sá, sem lék þaö, lét flogið vera svo hressilegt, aö hann kastaðist frá einunt enda leikpallsins til annars, og þótti takast vel. Villi' 'slátrari, í fangelsinu fyrir manndráp, horaöur útlits og óaðlaðandi að ásýndum, söng meö þiöri og fagurri tenorrödd um ekkju í smáhýsi, þöktu rósum og veöibréfum, sem átti að úthýsa, er son hennar bar að garði meö féið, er við þurfti. Kvæðiö var ort af skáldi, sem aðstoðaði við útgáfu “Vionarstjörnunnar”, sem var fang- •dlsisblaðið, og gáfu áheyrendurnnr mjög greinilega vott þess, að þeim geðjaðist stykkiö. Þá var, beðið um af ýmsum, aö hann <syngi “Silver Threads Among the Gold”, og söng slátrarinn það með svo mikilli viðkvæmni og fegurð, aö öíl .mannþyrpingin stóð á öndinni. Þegar hann slepti síðustu nótunni, kom dynjandi lófaklappið og hávær velþóknun á söngnum, og varð slátrarinn að endurtaka sönginn. iHugur margs fangans hvarflaði til baka til heimilis, er hann fyrir löngu hafði tapað og gleymt þar til, er hann hlustaöi á þennan gamla söng, sem aldrei fyrnist. María og Jói sátu saman, og hvíldi merki hersins á knjám þeirra. Þau héldu þétt hvort í hendina á öðru, og skemtu sér bæði eins og börn að því, sem fram fór. Svo kom nú höfuðstykkið, sem átti að binda enda á þetta jóla- hald. Það voru menn meðal áheyrendanna, sem þarna höfðu verið útilokaðir fráj heiminum í þrjátíu ár. Og það átti að sýna þeim heiminn fyrir utan í hreyfimyndum. Það dundi við fagnandi lófa- klapp, þegar hvítt tjald var látið falla, og á því birtist hringmyndað Ijós. Gamanleikir voru fyrst sýndir í hreyfimyndunum, og svo komu myndir úr lífi samtíðarinnar, teknar af einu helsta hreyfimyndafélag- inu í landinu. Fangarnir fengu að isj.á myndir af flóðum og eldi, teknar af viðburðunum meðan þeir eru að gerast, af tilkomumikilli heræfingu, af nýju herskipi, sem verið var að hleypa af stokkunum, og svo af daglegu götulífi í New Yiork, Lundúnaborg, Berlin, París og öðrum borgum víðsvegar u.m heirn. Þegar farið hafði þannig verið um Iand og sjó, tilkynti sá, er myndirnar sýndi, með[ umsögn á tjaldinu, að síðustu myndirnar ættu að sýna framför í flugvélum og flugi. “Frábært flug ýmsra flugmanna á Hampstead sléttunum á Long Island, tuttugasta júní,” bar fyrir í tilkynningunni.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.