Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1926, Side 29

Sameiningin - 01.02.1926, Side 29
59 manna á hvaðá sviSi sem þau eru stigin. Það gengur? sem rauður þráður gegnum söguna alt fram á þennan dag. Samkvæmt goðsögn- um Grikkja uröu langvinnar píslir hlutskifti þess, sem sótti eld frá go'öabústöðum og flutti hann niður í mannheima. Vísindamenn miðaldanna voru brendir fyrir tilraunir til þess að skýra mönnunum náttúruna og lögmál hennar. Og þeir sem 'brendu þá voru ekki í neinum. vafa um það, að þeir væru að vinna guði þekt verk, sem hann sjálfur mundi síðar fullkomna með eilífum kvölum. Og enn í dag berja menn sér á brjóslt og andvarpa yfir guðleysi mannanna, þegar þeir eru að afla sér nýrrar þekkingar, hvort heldur það er .söguleg þekking á trúarhugmyndum mannanna á liðnum öldum og heilildarritum trúar okkar, eða reynt er að skygnast inn í ný lögmál tilverunnar. Annað atriði, en aukið erfiði lífsbaráttunnar, er það líka, sem komið hefir höfundi syndafallssögunnar inn á það spor að skoða sigæðisþroskann sem syndsamlegt athæfi gegn guði. Það er þessi kveljandi meðvitund um reiði guðis yfir höfði sér. Sú meðvitund var elíkki til meðan maðurinn hafði ekki etið af skilningstré góðs og ills. Höfundur hefir mætavel gent sér grein fyrir tilfinningum Adams og Evu, þegar þau eru að fela sig milli trjánna í aldingarð- inum, af því að þau 'blygaðst sín fyrir nekt sína frammi fyrir Jahve. Þeirra brot urðu því í augum hans ekki aðeins fyrsta brotið gegn vilja guðs, heldur einnig það brot, sem öll önnur brot eiga uppruna sinn að rekjá til. í huga hans verður hún þegar til þessi skoðun, sem síðan hefir drotnað um allar aldir, að með þessu broti væri syndin í heiminn komin. Og það er mjög skiljanlegt, hvernig sú skoðun verður til og helzt við, að syndin sé í heiminn komin með því að maðurinn verður siðgæðisvera. Syndameðvitund gerir ekki vart við sig hjá manninum fyrri en hann er orðin siðgæðisvera. Synd og syndameðviitund urðu í hugmyndum manna mikils til eitt og hið sama, og sú varð skoðun manna, að meðan maðurinn þekti ekki neinn mun á vondu og góðu, þá gæti ekki verið um neina/ synd að ræða. Páll postuli sagði, að syndin væri ? heiminn komin fyrir lög- mál, — með öðrum orðum: af því að lögmálið segði mönnunum, hvað þeir ættu að gera og hvað þeirr mættu ekki gera, þá syndguiðu þeir. En nútímanum er farið að lærast að gera skýran greinarmun á synd og syndameðvitund. Mörgum okkar virðist jafnfráleitt að segja, að það tvent væri eitt og hið sama. Syndameðvitund og sið- gæðisþrá eru tveir fletir á sömu tilfinningu. Meðvitund um vöntun á ljósi og Ijósþrá er það einnig. Eina örugga leiðin til að koma í veg fyrir það, að maðurinn þjáist nokkru sinni af ljðsþrá er það, að hann fæðist og alist upp í kolsvartamyrkri og kynnist aldrei ljósinu á nokkurn hátt. Og eina örugga leiðin til að forða manninum frá kvölum syndameðvitundarinnar er sú, að hann þekki aldrei neinn mun á vondu og góðui og hafi aldrei nokkra hugmynd um hvað sið- gæði er. Með fulíkomnun lífsins færist altaf út svið böls og blessunar.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.