Sameiningin - 01.05.1927, Blaðsíða 17
verið getur eins og sólskin hér í mannfélaginu og lýst
það og vermt, öllum til blessunar og gleði, hljóti að vera
rótfest og grundvölluð í trú hjartans á Jesúm Krist. Pyr-
ir vort leyti trúum vér því, að það eigi heima í mannfélag-
inu hér alveg eins og í Efesus, að til þess að kærleikur-
inn sé rótfastur og grundvallaður, þá þurfi Kristur að
húa fyrir trúna í hjörtum nianna. Leggjum því rækt við
Krists-lífið í okkur. Yerum með sama hugarfari og
Kristur. Hö'fum daglegt samfélag við Drottin í trú og
hæn. Þá verður góðvildin okkur eiginleg. Og þá getum
við lagt okkar bróðurskerf til friðarstefnunnar nær og
fjær.
Eins og börnin í Wales senda nú öllum öðrum börn-
um undir sólinni ástúðlega kveðju, og svo taka miljönir
harna undir kveðjuna og sárbæna allar þjóðir að tryggja
ævarandi frið í heiminum, svo skulum vér öll, sem viljum
vera Guðs börn, ganga nú góðvildinni til handa. Við
skulum leita sælunnar í hugarfari sjálfra okkar, láta
okkur skiljast það, að einasta vellíðan mannsins er falin
í hreinu og kærleiksríku hugarfari. En góðvild hjart-
ans skal rótfest og grundvölluð í ást til Guðs og trú á
Jesúm Krist.
Friður hjarta vors við Guð í Jesú Kristi ,sé tillag
vort í friðar-sjóð mannkynsins. —B. B. J.
Á þriðja sd. e. páska—Jóh. 16, 16-23.
(pessa stuttu stólræðu hefiir verið beðið að brrta).
Eg vil aftur, eins og á sunnud. var, vekja athygli yðar á sam-
bandi guðspallanna, sem valin eru hvert á eftir öðru þessa Drott-
ins daga, sem tilheyra páskahátíðinni. Á sjálfri páskahátíðinni
hljómaði um heiminn allan boðskapurinn um upprisu Jesú frá
dauðum. Á sunnudaginn næstan á eftir páskum var sagt frá því,
hvernig Jesús birtist postulum sínum lifandi eftir píslirnar og
færði þeim heim órækar sannanir fyrir því, að hann væri á lífi,-—<
og þá fengum vér og að skoða þann andlega og dýrlega líkama,
sem hann har eftir dauðann og athuga eðli hans. Á annan sd. eft-